Evrópumeistararnir hófu titilvörnina á sigri | Serbar unnu öruggan sigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. janúar 2022 18:37 Spánverjar hófu titilvörn sína á sigri. Dean Mouhtaropoulos/Getty Images Evrópumótið í handbolta fór af stað með fjórum leikjum sem lauk nú rétt í þessu. Ríkjandi Evrópumeistarar Spánar unnu nauman tveggja marka sigur gegn Tékklandi, 28-26.
Spánverjar höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik og náðu fjögurra marka forskoti um miðjan hálfleikinn. Liðið hélt þeirri forystu að mestu fram að hléi, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 14-11, Spánverjum í vil. Spánverjar náðu ekki að hrista Tékkana af sér í síðari hálfleik. Munurinn var tvö til þrjú mörk mest allan seinni hálfleikinn, og í tvígang náðu Tékkar að minnka muninn í eitt mark. Nær komust þeir þó ekki og Spánverjar unnu að lokum góðan tveggja marka sigur, 28-26. Is it a 🐦? Is it a ✈️? No, it's Ferran Sole!@RFEBalonmano 🇪🇸 #ehfeuro2022 pic.twitter.com/nnvWvcYrTY— EHF EURO (@EHFEURO) January 13, 2022 Þá vann Serbía öruggan átta marka sigur er liðið mætti Úkraínu í C-riðli. Serbar tóku forystuna snemma og þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 17-11, Serbíu í vil. Áfram héldu Serbarnir að þjarma að andstæðingum sínum í síðari hálfleik og náðu mest 12 marka forskoti þegar lítið var eftir. Úkraínumenn skoruðu þó seinustu fjögur mörk leiksins og löguðu stöðuna lítillega, en lokatölur urðu 31-23. Að lokum unnu rússar tveggja marka sigur gegn Litháen, 29-27, og Slóvenía hafði betur gegn Norður-Makedóníu, 27-25.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira