Aron skoraði sex og lagði upp fjögur í naumum sigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. desember 2021 20:50 Aron var frábær í kvöld. Nordjyske/Henrik Bo Aron Pálmarsson og félagar hans í Álaborg unnu nauman tveggja marka sigur er liðið tók á móti Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 32-30, en Aron kom með beinum hætti að tíu mörkum heimamanna.
Gestirnir í Fredericia voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og varnarleikur Álaborgarliðsins gekk illa. Fredericia náði mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 15-18. Aron og félagar voru hins vegar ekki lengi að jafna metin og komast yfir í seinni hálfleik, en við tók þá kafli þar sem að liðin skiptust á að skora. Í stöðunni 25-25 náðu heimamenn þó góðu áhlaupi og skoruðu þrjú í röð og lögðu þar grunninn að sigrinum. Liðið hélt forystu sinni út leikinn og vann að lokum tveggja marka sigur, 32-30. Eins og áður segir átti Aron virkilega góðan leik í liði Álaborgar, en hann skoraði sex og lagði upp önnur fjögur fyrir liðsfélaga sína. Liðið situr nú í öðru sæti dönsku deildarinnar með 23 stig eftir 14 leiki, fjórum stigum á eftir GOG sem trónir á toppnum.
Danski handboltinn Mest lesið Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Luke Littler grét eftir leik Sport Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Körfubolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Fótbolti Meikle skaut Littler skelk í bringu Sport Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Golf Michael Schumacher verður afi Formúla 1 Dagskráin í dag: Áttundi dagur heimsmeistaramótsins Sport Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Fótbolti Fleiri fréttir Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Bræðurnir góðir en Kolstad saknaði Sigvalda í tapi í Íslendingaslag Haukur og félagar unnu baráttuna um Búkarest Úrslitin í leik HK og Stjörnunnar standa „Ég er svo ótrúlega stolt af þér pabbi“ Toppliðið keyrði yfir lærisveina Guðjóns Vals í lokin Sjá meira