Þórdís Kolbrún á fundi þróunarmiðstöðvar OECD Heimsljós 7. desember 2021 09:05 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Á fundinum var sjónum beint að nauðsyn þess að öll ríki heims hafi aðgang að bjargráðum til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í gær þátt í ráðherrafundi Development Centre, þróunarmiðstöðvar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), þar sem sjónum var beint að nauðsyn þess að öll ríki heims hafi aðgang að bjargráðum til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins. Þórdís Kolbrún tók þátt í umræðu í gegnum fjarfundarbúnað um mikilvægi þess að bilið verði brúað milli þróunarríkja og auðugra ríkja hvað varðar aðgang að bóluefnum gegn COVID-19. „Heimsfaraldurinn hefur reynst vera stærsta áskorunin fyrir alþjóðasamfélagið og heimshagkerfið í áratugi,“ sagði hún meðal annars í ræðu sinni. „Það er brýnt verkefni að tryggja jafnt aðgengi að bóluefnum og sýna þannig samstöðu með öllum jarðarbúum.“ Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra vék einnig að framlagi Íslands til alþjóðlegs bóluefnasamstarfs. Íslensk stjórnvöld hafa lagt rúmlega milljarð króna til að bæta aðgang þróunarríkja að bóluefnum og hafa auk þess skuldbundið sig til að gefa á fjórða hundruð þúsund umframskammta af bóluefnum til efnaminni ríkja. Á fundinum var einnig fjallað um aðgengi þróunarríkja að fjármagni til enduruppbyggingar í kjölfar heimsfaraldursins og vandann sem fylgir þungri skuldabyrði fátækustu ríkjanna. Þróunarmiðstöð OECD styður þróunarríki við stefnumótun sem miðar að sjálfbærum vexti og velferð. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók við starfi framkvæmdastjóra miðstöðvarinnar fyrr á þessu ári og opnaði hún fundinn. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent