Miðá í Dölum til SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 17. nóvember 2021 11:51 Ragnheiður Thorsteinsson, varaformaður SVFR, og Guðbrandur Þorkelsson, formaður Fiskræktar-og veiðifélags Miðdæla Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur samið um leigu á veiðirétti í Miðá í Dölum og Tunguá frá og með sumrinu 2022. Ragnheiður Thorsteinsson, varaformaður SVFR, og Guðbrandur Þorkelsson, formaður Fiskræktar-og veiðifélags Miðdæla, skrifuðu undir samning þess efnis í Miðskógi í Dölum í kvöld
Ragnheiður segir Miðá vera mikinn feng fyrir félagið. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á starfi SVFR og undanfarið hefur félagið stækkað. Ég fagna því mjög að geta boðið félagsmönnum veiðileyfi í Miðá og Tunguá; þriggja stanga veiðisvæði sem geymir bæði lax og sjóbleikjur. Stór hópur félagsmanna hefur kallað eftir fleiri svæðum eins og þessu, fallegri og aðgengilegri veiðiá með góðum húsakosti þar sem veiðimenn sjá um sig sjálfir. Þetta er eiginlega fullkomin félagsá fyrir okkur, þar sem fjölskyldur og veiðihópar geta notið lífsins til fulls,“ segir Ragnheiður. Veiði hefst í Miðá þann 1. júlí og stendur út september. Félagsmenn geta sótt um veiðileyfi í félagaúthlutun sem hefst núna í nóvember. Að henni lokinni fara veiðileyfi í Miðá og Tunguá í almenna sölu þar sem félagsmenn njóta afsláttar af almennu verði. Nýir félagar njóta að sjálfsögðu sömu kjara og aðrir og einfalt er að ganga í félagið á vefsíðunni svfr.is
Stangveiði Mest lesið Gæti stefnt í mjög gott sumar í Eystri Rangá Veiði Kynning á veiðistöngum við Vífilsstaðavatn Veiði Lifnar aðeins yfir Blöndu Veiði Góðu tímibili lokið í Steinsmýrarvötnum Veiði Eins og í lygasögu Veiði Lax að ganga í Hvannadalsá Veiði Mótorhjólalögga vill verða formaður SVFR Veiði Stefnir í gott veður síðustu helgina í rjúpu Veiði Tveir risar úr Vatnsdalsá Veiði Nýr framkvæmdastjóri tekinn við hjá SVFR Veiði