Benedikt Gunnar var tíu af tíu og fékk líka tíu í einkunn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2021 14:48 Benedikt Gunnar Óskarsson var frábær í leiknum í gær. Vísir/Bára Dröfn Valsmaðurinn Benedikt Gunnar Óskarsson átti frábæran leik þegar Valur vann sjö marka sigur á HK í Olís-deild karla í handbolta í gær.
Tölfræðin sýndi vel hversu vel hinn nítján ára gamli Benedikt Gunnar spilaði þennan leik. Benedikt, sem er sonur Óskars Bjarna Óskarssonar aðstoðarþjálfara Valsliðsins, skoraði tíu mörk í leiknum þar af komu sex þeirra af vítalínunni. Benedikt klikkaði ekki á skoti í leiknum, var tíu af tíu í skotum. Benedikt Gunnar skapaði einnig sjö færi fyrir félagana og var með fimm stoðsendingar. Hann bjó því til fimmtán Valsmörk í leiknum og tapaði boltanum á móti aðeins einu sinni. Hann bjó líka til tvö mörk með því að fiska víti. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði úr öðru þeirra en Benedikt sjálfur úr hinu. Alls skoruðu Valsmenn því sextán mörk í leiknum þar sem Benedikt var í aðalhlutverki. Hann var bæði sá leikmaður sem skoraði mest og gaf flestar stoðsendingar hjá Valsliðinu í leiknum. Benedikt fékk líka tíu í einkunn hjá HB Statz, bæði fyrir heildarframmistöðu og fyrir sóknarleikinn líka. Benedikt hafði skorað þrjú mörk og ekki gefið stoðsendingu í fyrstu tveimur leikjunum en hann á enn eftir að klikka á skoti Olís-deildinni á leiktíðinni samkvæmt tölfræði HB Statz.
Olís-deild karla Valur Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira