Á mánudaginn fjölluðum við um botnbaráttuna,í fyrradag um liðin sem keppast um að komast í úrslitakeppnina,í gær liðin sem freista þess að ná heimavallarrétti og nú er komið að liðunum sem eru líklegust til að vinna Olís-deildina.
Haukar höfðu mikla yfirburði í deildarkeppninni á síðasta tímabili en úrslitakeppnin var tími Vals sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í 23. sinn í sögu félagsins.
Haukar og Valur verða áfram í og við toppinn og þá er Afturelding, sem hefur fengið góðan liðsstyrk í sumar, líkleg til afreka. En fyrirfram má ætla að kapphlaupið verði á milli félaganna hans séra Friðriks.
Afturelding í 3. sæti: Allt til alls til að ná árangri

Síðasta tímabil var endasleppt hjá Aftureldingu. Mosfellingar byrjuðu reyndar mjög vel en gáfu svo hressilega eftir og enduðu í 8. sæti sem er versti árangur þeirra síðan þeir komu upp í Olís-deildina 2014. Haukar rústuðu Aftureldingu svo í átta liða úrslitunum.
Eins og síðustu ár var meiðsladraugurinn á sveimi að Varmá. Birkir Benediktsson sleit hásin fyrir tímabilið, Sveinn Andri Sveinsson þurfti að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla, Arnór Freyr Stefánsson og Guðmundur Árni Ólafsson misstu mikið úr og svo mætti lengi telja. Ungir leikmenn eins og Þorsteinn Leó Gunnarsson og Blær Hinriksson fengu stór tækifæri á síðasta tímabili, gripu það með báðum höndum og eiga bjarta framtíð fyrir höndum.
Afturelding fékk góðan liðsstyrk í sumar. Þar munar mestu um Árna Braga Eyjólfsson, besta leikmann síðasta tímabils. Mosfellingar fengu einnig Hamza Kablouti, skyttu frá Túnis, og þrjá lánsmenn frá Haukum, þar á meðal leikstjórnandann bráðefnilega, Guðmund Braga Ástþórsson, sem lék með Aftureldingu hluta síðasta tímabils.
Markvarslan er kannski helsti veikleikinn en Andri Sigmarsson Scheving er lofandi markvörður og fær núna loksins tækifæri til að vera númer eitt í Olís-deildinni.
Langt er síðan Mosfellingar hafa verið með jafn öflugir á pappírnum og breiddin fyrir utan er svakaleg, sérstaklega þegar Birkir snýr aftur. Í raun er allt til alls í Mosfellsbænum til að berjast um titlana, sterkur leikmannahópur og frábær þjálfari. Eina ef-ið, og það er stórt, er heilsan á liðinu. En ef hún verður í ágætu lagi er engin ástæða til annars en að Afturelding geti farið langt.
Gengi Aftureldingar undanfarinn áratug
- 2020-21: 8. sæti+átta liða úrslit
- 2019-20: 3. sæti
- 2018-19: 6. sæti+átta liða úrslit
- 2017-18: 6. sæti+átta liða úrslit
- 2016-17: 4. sæti+bikarúrslit
- 2015-16: 3. sæti+úrslit
- 2014-15: 2. sæti+úrslit
- 2013-14: B-deild (1. sæti)
- 2012-13: 8. sæti
- 2011-12: 7. sæti

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili
- Mörk skoruð - 26,8 (6. sæti)
- Mörk fengin á sig - 27,4 (8. sæti)
- Hlutfallsvarsla - 27,5% (11. sæti)
- Skotnýting - 60,2% (7. sæti)
- Tapaðir boltar - 26,8 (5. sæti)
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Árni Bragi Eyjólfsson frá KA
- Hamza Kablouti frá Ivry
- Andri Sigmarsson Scheving frá Haukum (á láni)
- Guðmundur Bragi Ástþórsson frá Haukum (á láni)
- Kristófer Máni Jónasson frá Haukum (á láni)
Farnir:
- Arnór Freyr Stefánsson til Stjörnunnar
- Þorsteinn Gauti Hjálmarsson til Fram
Lykilmaðurinn

Það er engin gífuryrði að segja að Árni Bragi Eyjólfsson hafi komið inn í Olís-deildina með trukki og dýfu á síðasta tímabili. Hann var bæði markakóngur deildarinnar og verðskuldað valinn besti leikmaður hennar á lokahófi HSÍ. Árni Bragi er nú mættur aftur í Mosfellsbæinn og tekur væntanlega upp þráðinn frá því sem frá var horfið í fyrra. Hann getur bæði spilað sem skytta og hornamaður og koma hans er meðal þess sem gerir Aftureldingu hvað líklegasta til að ógna Haukum og Val.
Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...
Theodór Ingi Pálmason fer yfir möguleika Aftureldingar.
Haukar í 2. sæti: Orðnir langeygir eftir þeim stóra

Það er engu logið að Haukar hafi verið langbesta liðið í Olís-deildinni á síðasta tímabili. Haukar unnu nítján af 22 leikjum sínum og fengu níu stigum meira en næsta lið (FH). Þeir skoruðu flest mörk, fengu á sig fæst mörk, voru með bestu markvörsluna og bestu skotnýtinguna.
En í úrslitakeppninni fór allt í steik. Haukar töpuðu seinni leiknum gegn Stjörnunni í undanúrslitunum og átti svo aldrei möguleika gegn Val í úrslitaeinvíginu. Haukar sátu því eftir með deildarmeistaratitilinn enn eitt árið en biðin eftir Íslandsmeistaratitlinum lengdist enn. Þeir hafa ekki unnið hann í fimm ár sem þykir langur tími þar á bæ.
Litlar breytingar hafa orðið á Haukum frá síðasta tímabili. Þeir eru með nýtt markvarðapar en þeir Aron Rafn Eðvarðsson og Stefán Huldar Stefánsson komu í stað Björgvins Páls Gústavssonar og Andra Sigmarssonar Scheving. Orri Freyr Þorkelsson fór í atvinnumennsku en Haukar njóta núna krafta Stefáns Rafns Sigurmannssonar allt tímabilið.
Þá lánuðu Haukar Guðmund Braga Ástþórsson til Aftureldingar sem er illskiljanleg ákvörðun þar sem hann er einmitt leikmaðurinn sem vantar í sóknarleik Hafnarfjarðarliðsins.
Stefnan hjá Haukum er sú sama og alla þessa öld; að berjast um og vinna þá titla sem í boði eru. Eins og síðustu ár er meistarahráefnið til staðar en Haukar þurfa að hætta að bugast á úrslitastundu.
Gengi Hauka undanfarinn áratug
- 2020-21: Deildarmeistari+úrslit
- 2019-20: 4. sæti
- 2018-19: Deildarmeistari+úrslit
- 2017-18: 5. sæti+undanúrslit
- 2016-17: 3. sæti+átta liða úrslit
- 2015-16: Deildarmeistari+Íslandmeistari
- 2014-15: 5. sæti+Íslandsmeistari
- 2013-14: Deildarmeistari+úrslit+bikarmeistari
- 2012-13: Deildarmeistari+úrslit
- 2011-12: Deildarmeistari+undanúrslit+bikarmeistari

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili
- Mörk skoruð - 30,5 (1. sæti)
- Mörk á sig - 24,0 (1. sæti)
- Hlutfallsvarsla - 35,3% (1. sæti)
- Skotnýting - 64,8% (1. sæti)
- Tapaðir boltar - 8,6 (2. sæti)
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Aron Rafn Eðvarðsson frá Bietigheim)
- Stefán Huldar Stefánsson frá Gróttu (var á láni)
Farnir:
- Björgvin Páll Gústavsson til Vals
- Orri Freyr Þorkelsson til Elverum
- Andri Sigmarsson Scheving til Aftureldingar (á láni)
- Guðmundur Bragi Ástþórsson til Aftureldingar (á láni)
- Kristófer Máni Jónasson til Aftureldingar (á láni)
Lykilmaðurinn

Eftir erfið meiðsli sneri Stefán Rafn Sigurmannsson aftur til Hauka á síðasta tímabili og byrjaði að spila með liðinu eftir áramót. Að öllu eðlilegu ætti Stefán Rafn ekki að spila í Olís-deildinni, hæfileikarnir og getan eru þess eðlis. Hann er frábær að klára færin sín og gríðarlega mikilvægur í varnarleik Hauka. Stefán Rafn verður án nokkurs vafa einn af bestu leikmönnum deildarinnar í vetur.
Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...
Theodór Ingi Pálmason fer yfir möguleika Hauka.
Valur í 1. sæti: Halda áfram að fljúga vængjum þöndum

Síðasta tímabil hjá Val var æði sérstakt. Framan af tímabili voru Valsmenn afar brokkgengir og töpuðu sjö af fyrstu sextán leikjum sínum í Olís-deildinni. Snúningspunkturinn var neyðarlegt tap fyrir Þór fyrir norðan. Valur vann fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum, sló KA örugglega út í átta liða úrslitunum og slapp með skrekkinn gegn ÍBV í undanúrslitunum.
Í úrslitunum gegn Haukum sýndu Valsmenn allar sínar bestu hliðar og spiluðu frábæran handbolta, þann langbesta síðan Snorri Steinn Guðjónsson tók við liðinu, og unnu átta marka samanlagðan sigur. Talandi um að toppa á réttum tíma.
Besti leikmaður úrslitaeinvígisins, Anton Rúnarsson, er horfinn á braut sem og markverðirnir Martin Nagy og Einar Baldvin Baldvinsson. Nagy var ekkert sérstakur framan af en óx ásmegin eftir því sem á tímabilið leið og var mjög góður í úrslitakeppninni. Valur fékk engan aukvisa til að fylla skarð Nagys, sjálfan Björgvin Pál Gústavsson. Honum til halds og trausts verður japanski landsliðsmarkvörðurinn Motoki Sakai. Markvarslan hjá Val ætti að vera öllu stöðugri í vetur en í fyrra.
Valsmenn eru þegar komnir lengra en önnur lið enda komnir áfram í Evrópudeildinni og litu stórvel út í bikarleiknum gegn FH-ingum. Valur ætti því ekki að hökta af stað eins og undanfarin tvö ár.
Þótt Valur hafi ekki fengið neinn útileikmenn á liðið hinn bráðefnilega Tryggva Garðar Jónsson inni en hann gæti reynst svipað leynivopn og Einar Þorsteinn Ólafsson á síðasta tímabili.
Valsmenn hafa ekki varið Íslandsmeistaratitil síðan 1996 en eru í kjörstöðu til að gera það í vetur. Þeir eru með frábæran mannskap, styrkar stoðir, færan þjálfara og rétta hugarfarið. Mikið þarf til að fella þá af stalli sínum.
Gengi Vals undanfarinn áratug
- 2020-21: 3. sæti+Íslandsmeistari
- 2019-20: Deildarmeistari
- 2018-19: 3. sæti í deildinni+undanúrslit+bikarúrslit
- 2017-18 4. sæti+átta liða úrslit
- 2016-17: 7. sæti+Íslandsmeistari+bikarmeistari
- 2015-16: 2. sæti+undanúrslit+bikarmeistari
- 2014-15: Deildarmeistari+undanúrslit
- 2013-14: 3. sæti+undanúrslit
- 2012-13: 7. sæti
- 2011-12: 6. sæti

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili
- Mörk skoruð - 29,3 (3. sæti)
- Mörk á sig - 26,9 (5. sæti)
- Hlutfallsvarsla - 30,8% (8. sæti)
- Skotnýting - 61,5% (2. sæti)
- Tapaðir boltar - 8,1 (1. sæti)
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Björgvin Páll Gústavsson til Hauka
- Motoki Sakai frá Toyoda Gosei Blue Falcon
Farnir:
- Anton Rúnarsson til Emsdetten
- Martin Nagy til Gummersbach
- Einar Baldvin Baldvinsson til Gróttu
Lykilmaðurinn

Valsmenn voru aðeins með áttundu bestu hlutfallsmarkvörsluna í Olís-deildinni á síðasta tímabili. Hvað gerðu þeir? Sóttu Björgvin Pál Gústavsson, silfurdreng og mann sem hefur farið á um tuttugu stórmót. Markvarslan verður ekki til vandræða hjá Val á þessu tímabili og þá gefur Björgvin liðinu auka vídd í hraðaupphlaupunum en sendingar hans fram völlinn eiga eftir að skila ófáum mörkunum.
Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...
Ásgeir Örn Hallgrímsson fer yfir möguleika Vals.

Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.