Leikjavísir

Slagurinn heldur áfram í Galið: Doctor Victor og Tómas Welding leiða sín lið inn á völlinn

Tinni Sveinsson skrifar
Doctor Victor og Tómas Welding mætast í FIFA 21 í þættinum Galið.
Doctor Victor og Tómas Welding mætast í FIFA 21 í þættinum Galið. Albumm

Bjarki Bomarz, Doctor Victor, Tómas Welding og Birkir Snær Sigurðsson keppa í FIFA 21 í leikjaþættinum Galið.

Tvö tveggja manna lið keppa í hverjum þætti af Galið. Það lið sem vinnur heldur áfram að keppa við næsta lið og svo framvegis. Í síðasta þætti höfðu tónlistarmaðurinn Ízleifur og umboðsmaðurinn Logi Snær betur á móti tónlistarmanninum Króla og fótbolta- og tónlistarmanninum Loga Tómassyni, eða Luigi.

Nú eru það tónlistarmennirnir Bjarki Ómarsson, eða Bomarz, og Victor Guðmundsson, eða Doctor Victor, sem mæta tónlistarmanninum Tómasi Welding og fótboltamanninum Birki Snæ Sigurðssyni.

Klippa: Galið - Doctor Victor og Bomarz vs. Birkir Snær og Tómas Welding

Framleiðslufyrirtækið AlbummTV og vefmiðillinn Albumm.is framleiða þessa nýju leikjaþætti í samstarfi við SnorriBros, Vísi og Stöð 2 Esport. Þættirnir voru teknir upp á veitingastaðnum Le Kock í Hafnarstræti.

Þættirnir eru sjö talsins og koma út á fimmtudögum. Meðal fleiri keppenda næstu vikur má nefna landsliðsmanninn og Valsarann Birkir Má Sævarsson og fyrirliða meistaraflokk Breiðabliks Höskuld Gunnlaugsson.

Bjarki Bomarz, Doctor Victor, Tómas Welding og Birkir Snær. Einbeitningin skín úr hverju andliti.Albumm

Tengdar fréttir

GALIÐ – Glænýir vefþættir fara í loftið!

Leikjaþættirnir Galið eru alveg nýir af nálinni hér á Íslandi. Framleiðslufyrirtækið AlbummTV og vefmiðillinn Albumm.is framleiða þættina í samstarfi við SnorriBros, Vísi og Stöð 2 Esport. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.