Haldið er utan um Tónskáldasjóðinn í samvinnu við STEF en hann var stofnaður að frumkvæði STEFs árið 2011 með það að markmiði að styrkja tónskáld og textahöfunda til nýsköpunar.
Meðal þeirra tónlistarmanna sem fá styrki úthlutaða úr sjóðnum eru GDRN, Birnir, Floni, Jón Jónsson og Friðrik Dór svo einhverjir séu nefndir.

„Gróskan í íslenskri tónlist er einstök. Við erum stolt að taka þátt í því að styðja tónlistarfólk í frumsköpun á tónlist og höfum séð árangur þess á undanförnum árum” segir Þórhallur Gunnarsson framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar og stjórnarmaður í Tónskáldasjóði Bylgjunnar og Stöðvar 2.
„Eitt af markmiðum fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone er að efla þáttagerð í útvarpi og sjónvarpi þar sem íslensk tónlist er í öndvegi. Við munum halda áfram ótrauð á þeirri vegferð.
Með stuðningi við íslenskt tónlistarfólk eflum við og auðgum íslenska menningu og fjölmiðlastarfsemi“, segir Þórhallur.
Þeir listamenn sem fá styrki úr sjóðnum í ár eru:
Andrés Þór Gunnlaugsson | 200 þúsund |
Birnir Sigurðarson | 100 þúsund |
Björn Gunnlaugsson | 100 þúsund |
Brek | 200 þúsund |
Friðrik Dór | 200 þúsund |
Floni (Friðrik Róbertsson) | 100 þúsund |
GDRN | 200 þúsund |
Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir | 400 þúsund |
Gunnar Hjálmarsson | 200 þúsund |
Helga Soffía | 100 þúsund |
Helgi Rafn Ingvarsson | 100 þúsund |
Hera Hjartardóttir | 400 þúsund |
Hildur Kristín og Ragna | 400 þúsund |
Hipsumhaps | 200 þúsund |
Huginn | 100 þúsund |
Ingibjörn Aima | 100 þúsund |
Jóhann Helgason | 200 þúsund |
Jón jónsson | 200 þúsund |
Katrín helga | 200 þúsund |
Kristján Hreinsson | 100 þúsund |
Magnús Þór Sigmundsson | 200 þúsund |
Milkhouse | 400 þúsund |
Nýju fötin keisarans | 100 þúsund |
Ólafur Haukur Símonarson | 200 þúsund |
Rúnar Þórisson | 100 þúsund |
Stephan Stephensen | 200 þúsund |
Tómar R. Einarsson | 400 þúsund |
Veigar Margeirsson | 200 þúsund |
Viktor Guðmundsson | 100 þúsund |
Vigdís Hafliðadóttir | 100 þúsund |
Örnólfur Eldon Þórsson | 100 þúsund |
Teitur Magnússon | 100 þúsund |
Vísir, Stöð 2 og Bylgjan eru miðlar í eigu Sýnar.