Sogið greinilega að taka við sér Karl Lúðvíksson skrifar 10. ágúst 2021 09:53 Sogið hefur verið að taka ágætlega við sér í sumar og og það er vonandi að það verði áfram í bata.
Eins og við höfum oft sagt frá þá var staðan í Soginu heldur erfið þegar meira að segja á góðu sumri skilaði áinn fáum löxum. Heildarveiðin í Soginu þegar síðustu veiðitölur voru teknar saman fyrir viku voru 182 laxar á land en besti tíminn er gjarnan ágústmánuður svo Sogið gæti átt nóg inni. Að sama skapi er septemberveiðin líka oft ansi drjúg. Ingólfur Ásgeirsson hjá Starir leigutaka Sogsins, það er að segja svæðinu kenndu við B'ildsfell,var við veiðar í ánni með vinum og fjölskyldu í gær og var fjórum löxum landað en þrír sem sett var í að auki en sluppu af. Ásgarður hefur gefið flesta laxa í sumar en góðu fréttirnar eru líka þær að lax er farin að veiðast við Alviðru sem hefur verið lítið stunduð undanfarin ár og margir hreinlega búnir að afskrifa það svæði. Þar er ágæt bleikjuveiði og laxinn farinn að stoppa þar í auknum mæli.
Stangveiði Mest lesið Sogið greinilega að taka við sér Veiði Mikil eftirspurn eftir laxveiðileyfum fyrir 2017 Veiði Fínasta veiði í Apavatni Veiði Óvænt truflun á veiðistað Veiði Frábær tími fyrir dorgveiði Veiði Angling IQ búið að opna fyrir aðgang Veiði Styttist í opnun Setbergsár Veiði 122 stórlaxar á fyrsta degi í Eystri Rangá Veiði Vikulegar veiðitölur segja ekki allt Veiði Tveir mánuðir í að veiðin byrji Veiði