Drungilas var aldrei betri í vetur en einmitt á móti Stjörnunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2021 15:30 Adomas Drungilas skorar á móti Stjörnunni í deildarleik í vetur. Vísir/Elín Björg Fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Stjörnunnar og Þórs frá Þorlákshöfn í Domino's deild karla í körfubolta hefst í kvöld í Þorlákshöfn. Í liði heimamanna er lykilmaður sem ætti að vera með nóg eftir af tankinum eftir róleg átta liða úrslit. Adomas Drungilas er aðeins búinn að spila einn leik með Þór í úrslitakeppninni í ár eftir að hafa tekið út leikbann í fyrstu þremur leikjunum í átta liða úrslitunum. Þórsarar komust í 2-1 á móti Þór Akureyri án hans og unnu síðan fyrsta leikinn með hann í liðinu með 32 stigum á útivelli. Drungilas var með 8 stig, 10 fráköst og 2 varin skot á 25 mínútum sem Þórsliðið vann með 24 stiga mun. Þórsliðið vann báða deildarleiki sína á móti Stjörnunni í vetur og það með samtals tuttugu stiga mun. Þar munaði mikið um framlag Adomas Drungilas. Drungilas skilaði 28,5 framlagsstigum að meðaltali í þessum tveimur leikjum á móti Garðabæjarliðinu en í þeim var hann með 15,0 stig, 12,0 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik og hitti úr 61 prósent skota sinna fyrir innan þriggja stiga línuna. Þetta er hæsta framlag Drungilas að meðaltali á móti einu félagi í vetur en hann var einnig mjög öflugur á móti Val, ÍR og Tindastól. Drungilas skoraði reyndar meira í leikjum sínum á móti ÍR (18,0), Grindavík (17,0), Hetti (15,5), Keflavík (15,5) og Njarðvík (15,5). Hann var aftur á móti með flest fráköst, flestar stoðsendingar, flesta stolna bolta og flest varin skot á móti einu liði í leikjunum á móti Stjörnunni. Fyrsti leikur Þórs Þorl. og Stjörnunnar hefst klukkan 20.15 í kvöld og er hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 19.45 og eftir leikinn verður leikurinn gerður upp. Hæsta framlag Adomas Drungilas í leik á móti einstökum mótherjum í vetur: 28,5 á móti Stjörnunni 26,0 á móti Val 25,5 á móti ÍR 24,5 á móti Tindastól 21,0 á móti Keflavík 20,0 á móti KR Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland. Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Stjarnan Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Adomas Drungilas er aðeins búinn að spila einn leik með Þór í úrslitakeppninni í ár eftir að hafa tekið út leikbann í fyrstu þremur leikjunum í átta liða úrslitunum. Þórsarar komust í 2-1 á móti Þór Akureyri án hans og unnu síðan fyrsta leikinn með hann í liðinu með 32 stigum á útivelli. Drungilas var með 8 stig, 10 fráköst og 2 varin skot á 25 mínútum sem Þórsliðið vann með 24 stiga mun. Þórsliðið vann báða deildarleiki sína á móti Stjörnunni í vetur og það með samtals tuttugu stiga mun. Þar munaði mikið um framlag Adomas Drungilas. Drungilas skilaði 28,5 framlagsstigum að meðaltali í þessum tveimur leikjum á móti Garðabæjarliðinu en í þeim var hann með 15,0 stig, 12,0 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik og hitti úr 61 prósent skota sinna fyrir innan þriggja stiga línuna. Þetta er hæsta framlag Drungilas að meðaltali á móti einu félagi í vetur en hann var einnig mjög öflugur á móti Val, ÍR og Tindastól. Drungilas skoraði reyndar meira í leikjum sínum á móti ÍR (18,0), Grindavík (17,0), Hetti (15,5), Keflavík (15,5) og Njarðvík (15,5). Hann var aftur á móti með flest fráköst, flestar stoðsendingar, flesta stolna bolta og flest varin skot á móti einu liði í leikjunum á móti Stjörnunni. Fyrsti leikur Þórs Þorl. og Stjörnunnar hefst klukkan 20.15 í kvöld og er hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 19.45 og eftir leikinn verður leikurinn gerður upp. Hæsta framlag Adomas Drungilas í leik á móti einstökum mótherjum í vetur: 28,5 á móti Stjörnunni 26,0 á móti Val 25,5 á móti ÍR 24,5 á móti Tindastól 21,0 á móti Keflavík 20,0 á móti KR Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Hæsta framlag Adomas Drungilas í leik á móti einstökum mótherjum í vetur: 28,5 á móti Stjörnunni 26,0 á móti Val 25,5 á móti ÍR 24,5 á móti Tindastól 21,0 á móti Keflavík 20,0 á móti KR
Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Stjarnan Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira