Tíska og hönnun

Halda uppboð á frumgerðum hönnuðanna í Ásmundarsal

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ásmundarsalur.
Ásmundarsalur. Facebook

Á morgun fer fram sérstakt uppboð í Ásmundarsal á milli 15:00 og 17:00. Á uppboðinu verða hlutir sýningarinnar Hlutverks til sölu og verður Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkítektúrs í hlutverki uppboðsstjóra.

Í aðdraganda HönnunarMars 2021 stóð Félag vöru-og iðnhönnuða fyrir opnu umsóknarferli með það fyrir augum að setja upp sýningu. Kallað var eftir hugmyndum að því hvernig finna má hlutum sem ýmist hafa eða eru að missa hlutverk sitt í hversdagsleikanum nýtt hlutverk. 

Dómnefnd á vegum félagsins valdi fjórtán nafnlausar tillögur sem fengu að þróast frá blaði yfir í frumgerð. Frumgerðirnar eru nú til sýnis í Ásmundarsal og verður slegið til uppboðs þann 23. maí í garði Ásmundarsals. Sýningin stendur opin til 30. maí. 

Sýningarstjórar eru þær Íris Indriðadóttir og Signý Jónsdóttir. Uppboðsstjóri er Halla Helgadóttir Hönnuðir og hönnunarteymi verkanna eru:

  • Ásgerður Ólafsdóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Kamilla Henriau
  • Guðný Sara Birgisdóttir
  • Emilía Borgþórsdóttir og Þórunn Hannesdóttir
  • Hákon Bragason
  • Hrafnkell Birgisson
  • Hreinn Bernharðsson og Garðar Eyjólfsson
  • Jóhann Ingi Skúlason Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir
  • Krot og Krass
  • Marta Róbertsdóttir
  • Plastplan
  • Studio Flétta
  • Rebekka Ashley
  • Rúna Thors


Tengdar fréttir

„Við lesum hvor aðra vel og vinnum eins og vel smurt tannhjól“

Hlín Reykdal og fatamerkið skaparinn sýna saman línu á HönnunarMars sem sameinar stefnu skartgripa- og fatahönnuðar á óvæntan og skemmtilegan hátt. Þær fara nýjar leiðir og fengu svo Dóru Dúnu ljósmyndara til að fanga sýn sem hefur myndast í þeirra þróun.

Kynnir Íslendinga fyrir húsum Sigvalda með bók og sýningu

„Ég er að gefa út bók um þar sem ég tek saman mín uppáhalds verk eftir arkitektinn Sigvalda Thordarson, þetta er svona nokkurs konar ástarbréf en bókin heitir einmitt Ástarbréf til Sigvalda,“ segir Logi Höskuldsson, betur þektur sem Loji.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.