Veður

Víða bjart­viðri en dá­litlar skúrir um landið austan­vert

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu eitt til ellefu stig yfir daginn, mildast suðvestantil.
Hiti á landinu verður á bilinu eitt til ellefu stig yfir daginn, mildast suðvestantil. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðlægri átt, golu eða kalda í dag. Spáð er víða bjartviðri, en skýjað um landið austanvert og dálitlar skúrir eða slydduél. Hiti á landinu eitt til ellefu stig yfir daginn, mildast suðvestantil, en allvíða næturfrost.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á morgun og sunnudag sé búist við austan og norðaustan, fimm til þrettán metrum á sekúndu. Rigning eða slydda með köflum, en stöku skúrir vestantil á landinu.

„Áfram svalt í veðri, hitinn nær þó væntanlega að skríða yfir 10 stig á Suður- og Vesturlandi að deginum,“ segir í færslunni.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag og sunnudag (hvítasunnudagur): Norðaustan og austan 5-13 m/s. Slydda eða rigning með köflum um landið A-vert, annars stöku skúrir. Hiti 2 til 10 stig, mildast SV- og V-lands.

Á mánudag (annar í hvítasunnu): Hæg austlæg eða breytileg átt og skúrir, en úrkomulítið á NA- og A-landi. Hiti 3 til 10 stig.

Á þriðjudag: Breytileg átt og víða léttskýjað, en skýjað V-lands. Hlýnandi veður.

Á miðvikudag: Suðlæg átt, bjart veður og milt, en skýjað með köflum á S- og V-landi.

Á fimmtudag: Sunnanátt og dálítil rigning V-lands, en léttskýjað á NA- og A-landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×