Kastnámskeið með Klaus Frimor Karl Lúðvíksson skrifar 10. maí 2021 09:02 Klaus Frimor mun sýna hin ýmsu afbrigði af fluguveiðiköstum á kastnámskeiðinu Veiðiflugur Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiflugur munu á næstunni bjóða upp á flugukastnámskeið, fyrir byrjendur sem lengra komna.
Kennari verður einn fremsti flugukastkennari í heimi, Klaus Frimor. Það er mikill hvalreki að fá jafn flottan kennara til liðs við okkur, enda býr hann að yfirgripsmikilli þekkingu. Klaus hefur síðustu áratugi starfað sem aðalhönnuður hjá Loop og Guideline þar sem hann hefur hannað, prófað og þróað flugustangir og flugulínur. Að auki hefur hann verið leiðsögumaður víðsvegar um landið um margra ára skeið. Mikil reynsla býr þarna að baki og ættu allir veiðimenn, reyndir sem óreyndir, að geta aukið þekkingu sína og getu í fluguköstum. Farið verður yfir undirstöðuatriðin en jafnframt kafað dýpra og hin ýmsu afbrigði flugukasta kynnt til sögunnar. Námskeiðin eru kjörin fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu köst, en nýtast einnig vanari veiðimönnum því hér gefst gott tækifæri að leiðrétta villur í köstunum og bæta um leið framsetningu flugunnar. Farið verður yfir ólíkar gerðir flugulína, notkun á mismunandi taumum og hvernig best er að haga veiðibúnaðinum svo vel takist til þegar á bakkann er komið. Það munu sannarlega allir græða á að sækja þessi námskeið enda gefst veiðimönnum kostur á að leita svara við öllum þeim spurningum sem viðkoma fluguköstum. Námskeiðin verða fjögur talsins og í fjórar klukkustundir hvert: Þriðjudagurinn 25.maí kl 18:00 – 22:00 – einhendu námskeið – 10 laus pláss Miðvikudagurinn 26.maí kl 18:00 – 22:00 – einhendu námskeið – 10 laus pláss Fimmtudagurinn 27.maí kl 18:00 – 22:00 – tvíhendu námskeið – 10 laus pláss Föstudagurinn 28.maí kl 18:00 – 22:00 – tvíhendu námskeið – 10 laus pláss Verð til félagsmanna SVFR er 12.000 kr., en þau sem ekki eru í félaginu greiða 15.000 kr. SKRÁNING ER HÉR Námskeiðin verða haldin við Rauðavatn fyrir neðan Morgunblaðshúsið. Þátttakendur skulu mæta með stöng, hjól og línu. Gott er að vera með stígvél eða vöðlur meðferðis.
Stangveiði Mest lesið Lokatölur úr flestum ánum komnar í hús Veiði 53 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Íslensku hrosshárin slógu í gegn Veiði 79 laxa lokadagur í Eystri Rangá Veiði Laxinn mættur í Langá og Grímsá Veiði Geldingatjörn kemur vel undan vetri Veiði Fræðslukvöld SVFR farin í gang Veiði Miðá í Dölum til SVFR Veiði 103 sm lax úr Ytri Rangá Veiði Fyrstu veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga Veiði