„Fjallar um mína eigin reynslu þegar ég var að koma úr skápnum“ Ritstjórn Albumm skrifar 6. apríl 2021 18:30 Hljómsveitin Vök. Dóra Dúna Hljómsveitin Vök sendir í dag frá sér nýtt myndband við lagið Lost in the Weekend sem hefur verið í mikilli spilun frá því að það kom út nýverið. Það vekur athygli að Margrét Rán er persónulegri í textagerðinni en áður og leitast við að gera ákveðið uppgjör við unglingsárin. Myndbandið undirstrikar þetta uppgjör hennar enn frekar en aðalhlutverkið er í höndum leikarans Snorra Engilbertssonar. Einar Egilsson skrifaði handritið og leikstýrir verkinu. Hann segir söguna fjalla um mann sem hatar dagvinnuna sína. „Hann bíður spenntur eftir hverri helgi svo hann geti týnt sér í tónlist. Hann er einangraður og finnst hann ekki fá viðurkenningu á því hver hann er. Tónlistin hjálpar honum að finna sjálfan sig og brjótast úr sjálfsköpuðum hömlum. Textinn bauð upp á að fagna fjölbreytileikanum með þessum hætti og hvetja fólk til að hafa kjark til að vera það sjálft.” watch on YouTube Margrét Rán segist mjög ánægð með útkomuna. „Túlkun Einars á laginu er mjög sönn og Snorri leikur hlutverk sitt frábærlega vel. Lagið fjallar um mína eigin reynslu þegar ég var að koma úr skápnum. Ég þurfti að telja í mig kjark til að koma fram sem sú sem ég var,“ útskýrir hún en tónlistin var sálufélagi hennar í þessu uppgjöri við sjálfa sig og djammið var fylgifiskur. „Kannski ekki alltaf sá besti en það hjálpaði mér að losa hömlurnar.“ Þetta er fyrsta útgáfa Vakar frá því að þau sendu frá sér verðlaunaplötuna In the Dark árið 2019 sem var gerð í samstarfi við breska lagahöfundinn og upptökustjórann James Earp (Bipolar Sunshine, Fickle Friends, Lewis Capaldi). Þríeykið sem myndar Vök eru Margrét Rán söngkona og lagahöfundur, Einar Stef gítar- og bassaleikari og Bergur Dagbjartsson trommuleikari. Lost in the Weekend er forsmekkurinn af nýrri plötu sem hljómsveitin stefnir á að senda frá sér í byrjun næsta árs. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Menning Mest lesið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Lífið Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Áskorun Losnaði við alla fíkn á augabragði: „Því Guð er með skyndilausnir líka“ Áskorun Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist
Myndbandið undirstrikar þetta uppgjör hennar enn frekar en aðalhlutverkið er í höndum leikarans Snorra Engilbertssonar. Einar Egilsson skrifaði handritið og leikstýrir verkinu. Hann segir söguna fjalla um mann sem hatar dagvinnuna sína. „Hann bíður spenntur eftir hverri helgi svo hann geti týnt sér í tónlist. Hann er einangraður og finnst hann ekki fá viðurkenningu á því hver hann er. Tónlistin hjálpar honum að finna sjálfan sig og brjótast úr sjálfsköpuðum hömlum. Textinn bauð upp á að fagna fjölbreytileikanum með þessum hætti og hvetja fólk til að hafa kjark til að vera það sjálft.” watch on YouTube Margrét Rán segist mjög ánægð með útkomuna. „Túlkun Einars á laginu er mjög sönn og Snorri leikur hlutverk sitt frábærlega vel. Lagið fjallar um mína eigin reynslu þegar ég var að koma úr skápnum. Ég þurfti að telja í mig kjark til að koma fram sem sú sem ég var,“ útskýrir hún en tónlistin var sálufélagi hennar í þessu uppgjöri við sjálfa sig og djammið var fylgifiskur. „Kannski ekki alltaf sá besti en það hjálpaði mér að losa hömlurnar.“ Þetta er fyrsta útgáfa Vakar frá því að þau sendu frá sér verðlaunaplötuna In the Dark árið 2019 sem var gerð í samstarfi við breska lagahöfundinn og upptökustjórann James Earp (Bipolar Sunshine, Fickle Friends, Lewis Capaldi). Þríeykið sem myndar Vök eru Margrét Rán söngkona og lagahöfundur, Einar Stef gítar- og bassaleikari og Bergur Dagbjartsson trommuleikari. Lost in the Weekend er forsmekkurinn af nýrri plötu sem hljómsveitin stefnir á að senda frá sér í byrjun næsta árs. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Menning Mest lesið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Lífið Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Áskorun Losnaði við alla fíkn á augabragði: „Því Guð er með skyndilausnir líka“ Áskorun Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp