Donna lýsir Framhaldsskólaleikunum og nú er komið að Rocket League Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2021 14:00 Kristján Einar Kristjánsson og Donna Cruz lýsa keppni framhaldsskólanna í Rocket League leiknum í kvöld kl. 19. Samsett/Hulda/Vilhelm/Rocket League Átta framhaldsskólar munu keppa í kvöld í beinni útsendingu í tölvuleiknum Rocket League á öðru útsendingarkvöldi Framhaldsskólaleikanna í rafíþróttum. Leikkonan Donna Cruz mun lýsa því sem fyrir augu ber á Stöð 2 eSport ásamt Kristjáni Einari Kristjánssyni. Donna Cruz mun lýsa keppni í Rocket League á Framhaldsskólaleikunum í kvöld. Á Framhaldsskólaleikunum er keppt í þremur leikjum; Counter-Strike, Rocket League og FIFA. Fjórtán skólar eru skráðir til keppni og er þeim skipt í tvo riðla í hverjum leik. Tvö lið komast upp úr hvorum riðli og spila um sæti, og fást 10 stig fyrir efsta sætið í hverjum tölvuleikjanna þriggja, átta stig fyrir 2. sætið, og svo færri stig eftir því sem lið enda neðar. Mest geta fulltrúar skólanna því fengið 30 stig, eða reyndar 35 stig ef þeir klára fimm samfélagsmiðlaáskoranir sem fela í sér heilbrigðan lífsstíl. Fjórir efstu skólarnir í heildarstigatöflunni komast í undanúrslit og bítast um meistaratitilinn. Aukastig fást fyrir að birta myndir af keppendum á samfélagsmiðlum að sinna heilbrigðum lífsstíl. Í kvöld eru eins og fyrr segir fjórir leikir á dagskrá í Rocket League og verðar þeir í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. Í Rocket League er keppni skammt á veg komin en MH, Kvennaskólinn og Tækniskólinn hafa þó unnið tvo leiki hvert. Leikir kvöldsins: Framhaldsskólinn á Laugum – Menntaskólinn á Tröllaskaga Kvennaskólinn í Reykjavík – Tækniskólinn Menntaskólinn í Reykjavík – Menntaskólinn á Egilsstöðum Menntaskólinn á Ásbrú – Verzlunarskóli Íslands Hægt er að horfa á útsendingu kvöldsins í spilaranum hér fyrir neðan: Keppni í Counter-Strike er lengra komin en þar eru Flensborg, Tækniskólinn og Verslunarskóli Íslands enn með fullt hús stiga. Versló og Borgarholtsskóli mættust í magnaðri viðureign í síðustu viku, í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Vissu ekki að hún hefði skipt um landslið Sport Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Körfubolti Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Fótbolti
Framhaldsskólinn á Laugum – Menntaskólinn á Tröllaskaga Kvennaskólinn í Reykjavík – Tækniskólinn Menntaskólinn í Reykjavík – Menntaskólinn á Egilsstöðum Menntaskólinn á Ásbrú – Verzlunarskóli Íslands
Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Vissu ekki að hún hefði skipt um landslið Sport Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Körfubolti Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Fótbolti