„Ég er hrikalega ánægður með frammistöðuna, líka hjá liðinu. Við sýndum góða liðsheild og samvinnu,“ sagði Stefán í samtali við Vísi í gær. Hann varði átján skot í marki Gróttu, eða 47,4 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig í leiknum.
Frammistaðan þurfti ekki að koma á óvart því Stefán hefur verið algjörlega magnaður í marki nýliðanna í vetur og er með bestu hlutfallsmarkvörslu allra í Olís-deildinni, eða 40,6 prósent. Næsti maður á lista, Vilius Rasimas hjá Selfossi, er með 37 prósent hlutfallsmarkvörslu.
Eftir sárt tap fyrir Þór á Akureyri hefur Grótta nú unnið tvo góða sigra í röð, gegn Fram og Selfossi. „Þetta gekk ekki upp á móti Þór en leikáætlunin hefur gengið upp í síðustu tveimur leikjum. Allt sem við ætluðum að gera gekk eftir,“ sagði Stefán.
Grótta er í 10. sæti deildarinnar með níu stig, fimm stigum frá fallsæti en bara tveimur stigum frá sæti í úrslitakeppninni. Og þangað vilja Seltirningar fara.
„Okkur langar í úrslitakeppnina. Við ætlum að gera allt sem við getum til að komast þangað,“ sagði Stefán.
Eins og áður sagði er Grótta er nýliði í Olís-deildinni og eins og markmiðið er oft hjá þeim ætluðu Seltirningar fyrst og síðast að tryggja tilverurétt sinn í efstu deild.
„Númer eitt var að halda okkur uppi en aukamarkmið var að komast í úrslitakeppnina,“ sagði Stefán.
Alltaf verið varamarkvörður
Þrátt fyrir að hann sé í fyrsta sinn í sviðsljósinu núna á Stefán nokkuð langan feril að baki. Þessi þrítugi Hafnfirðingur hefur aðallega verið varamarkvörður hjá liðum í efstu deild eða aðalmarkvörður hjá liðum í B-deildinni.
Eftir síðasta tímabil gekk Stefán í raðir uppeldisfélagsins Hauka frá HK. Hann var síðan lánaður til Gróttu þar sem hann nýtur sín vel.

„Ég er ánægður að fá traust og loksins tækifæri til að sýna mig. Ég hef alltaf verið varamarkvörður og aldrei fengið það mikið traust til að láta ljós mitt skína. Ég er mjög þakklátur þjálfurunum í Gróttu,“ sagði Stefán sem hefur, auk áðurnefndra liða, leikið með Víkingi og Fjölni.
Þá hefur hann áður leikið með Gróttu, tímabilið 2014-15 þegar liðið vann B-deildina án þess að tapa leik. Meðal leikmanna í því liði var markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í dag, Viggó Kristjánsson.
Vonsvikinn að fá ekki fleiri tækifæri með HK
Stefán fer ekkert leynt með að hann hefði viljað spila meira með HK á síðasta tímabili.
„Ég var mjög vonsvikinn að fá ekki fleiri tækifæri með HK í fyrra, sérstaklega þar sem markvarslan var ekki mikil,“ sagði Stefán.

Björgvin Páll Gústavsson og Andri Sigmarsson Scheving hafa varið mark Hauka í vetur en sem kunnugt er gengur sá fyrrnefndi í raðir Vals í sumar.
„Ég er samningsbundinn Haukum næstu tvö árin. En þetta kemur allt í ljós þegar við ræðum saman,“ sagði Stefán aðspurður hvort hann vonaðist eftir því að fá tækifæri hjá Haukum á næsta tímabili.
En hverju þakkar Stefán frábæra frammistöðu á þessu tímabili?
„Mér líður vel og fylgi alltaf minni rútínu. Ég er vel tilbúinn í alla leiki og undirbúningurinn er ógeðslega góður,“ sagði Stefán sem eyðir talsverðum tíma í að skoða myndbönd af mótherjum sínum. Þá er hann duglegur að fara yfir eigin frammistöðu og horfa gagnrýnum augum á hana.
Skoðar hvað hann gerir vitlaust
„Ég skoða líka rosalega mikið hvað ég geri vitlaust í fyrri leikjunum og það hjálpar mér mjög mikið. Ég ætla að halda áfram að gera mitt besta fyrir liðið. Það er það eina sem ég get gert.“

Meðfram handboltanum starfar Stefán hjá Trefjum í heimabænum, Hafnarfirði, og hefur gert í rúmt ár.
„Við smíðum heita potta og báta. Ég kann mjög vel við mig þar og þetta er mjög góður vinnustaður,“ sagði Stefán að lokum.

Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.