Augað afmyndað og Steinunn er á mjög sterkum verkjalyfjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2021 12:31 Steinunn Björnsdóttir er einn besti leikmaður Olís deildarinnar og gríðarlega mikilvægur liðsfélagi fyrir Framkonur. Vísir/Bára Steinunn Björnsdóttir hélt að augað sitt væri lokað en það var í raun og veru opið. Seinni bylgjan fór betur yfir meiðsli fyrirliða Framliðsins.
Svava Kristín Grétarsdóttir og sérfræðingar hennar í Seinni bylgjunni fóru yfir meiðsli Steinunnar Björnsdóttur í leik Fram og FH í Olís deild kvenna í handbolta um síðustu helgi. „Þetta virðist ekki vera mikið en svo þegar við skoðum þetta betur þá fylgir hendin eftir. Hún hitti Steinunni það illa að þetta er mjög alvarlegt,“ sagði Svava Kristín Grétarsdóttir þegar þær hófu umræðu sína um meiðslin og sýndi atvikið þegar skothendi FH-ingsins Britney Cots fór í höfuð Steinunnar. Steinunn Björnsdóttir liggur í gólfinu eftir að hafa fengið höggið.Skjámynd/S2 Sport „Eins og sést þarna þá er hún bara blind. Hún hélt að augað á sér væri lokað en það var í raun og veru opið. Hún fer beint upp á spítala og endar þar á að fá morfín. Hún hittir þar bæði augnlækni og lýtalækni. Hún er í stöðugu eftirliti. Hún þarf núna að hvíla í tíu til tólf daga og má mjög lítið gera eða hreyfa sig,“ sagði Sunneva Einarsdóttir, sérfræðingur Seinni bylgjunnar. Sunneva vissi meira um líðan Steinunnar: „Hún er kvalin og er á mjög sterkum verkjalyfjum. Það er ekki vitað með sjónina og hvað verður. Hvort hún muni fá hundrað prósent sjón aftur? Eins og staðan er núna þá sér hún allt í móðu. Þetta verður erfitt,“ sagði Sunneva. „Ég sá einhverjar myndir og augað er bara afmyndað,“ sagði Svava Kristín Grétarsdóttir. „Það er stokkbólgið og hún getur ekki opnað það. Svo blæddi líka og það var ekki vitað hvort að augnlokið hefði sprungið undan þrýstingi eða hvort að Britney hafi farið með nöglina í augnlokið. Augnlokið sprakk og þetta var ekki gott. Hún missir alla vega af næstu tveimur leikjum,“ sagði Sunneva en það má sjá þetta í myndbandinu hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Meiðsli Steinunnar Björnsdóttur
Seinni bylgjan Olís-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira