Guðmundur skýtur á sérfræðinga RÚV: „Einhver íslensk minnimáttarkennd sem brýst út“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. janúar 2021 09:54 Guðmundur Guðmundsson brýnir leikmenn íslenska liðsins í leiknum gegn Sviss í fyrradag. epa/Anne-Christine Poujoulat Guðmundur Guðmundsson sendi handboltasérfræðingum RÚV tóninn í gær og velti því upp hvort of miklar væntingar hefðu áhrif á íslenska landsliðið inni á vellinum á HM í Egyptalandi.
Þeir Arnar Pétursson og Logi Geirsson hafa staðið sérfræðingavaktina í HM-stofu RÚV undanfarna daga. Þeir, eins og aðrir, voru ekki hrifnir af frammistöðu íslenska liðsins í tapinu fyrir því svissneska, 20-18, í fyrradag. Í viðtali í kvöldfréttum RÚV í gær sagði Guðmundur að umræðan um íslenska liðið væri á villigötum og að óöryggi liðsins mætti hugsanlega skýra með óraunhæfum væntingum til þess. „Ég velti því fyrir mér þegar ég var búinn að ná mér niður eftir leikinn hvað veldur þessu óöryggi, það kemur fram í skotunum maður gegn manni, í hraðaupphlaupunum. Það er óöryggi yfir liðinu og það getur vel verið að það sé búið að spila upp einhverjar væntingar sem menn eiga erfitt með að standa undir, sérstaklega þegar liðið hefur orðið fyrir þessum skakkaföllum sem það hefur orðið fyrir,“ sagði Guðmundur. „Menn eru alltaf að setja þetta lið í eitthvað bílstjórasæti. Þetta er einhver íslensk minnimáttarkennd sem brýst út, sérstaklega í umfjöllun hjá þessum stóru sérfræðingum til dæmis á RÚV,“ bætti Guðmundur við. Ísland mætir Frakklandi í öðrum leik sínum í milliriðli III í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira