Grænhöfðaeyjar draga sig úr leik á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2021 13:39 Stutt gaman. Grænhöfðeyingar léku aðeins einn leik á HM í Egyptalandi. epa/Anne-Christine Poujoulat Lið Grænhöfðaeyja hefur dregið sig úr keppni á HM í handbolta karla í Egyptalandi vegna hópsmita í herbúðum þess.
Grænhöfðaeyjar neyddust til að gefa leikinn gegn þýsku strákunum hans Alfreðs Gíslasonar á laugardaginn þar aðeins níu leikmenn voru leikfærir. Hafa þarf að minnsta kosti tíu leikmenn á skýrslu í leik á HM. Grænhöfðeyingar áttu að mæta Úrúgvæum í dag en ekkert verður af því þar sem þeir náðu ekki í lið og hafa dregið sig úr keppni. Úrúgvæ verður dæmdur sigur, 10-0, og liðið kemst því áfram í milliriðla þrátt fyrir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í A-riðli með samtals 55 mörkum. Grænhöfðaeyjar töpuðu með sjö marka mun, 34-27, fyrir Ungverjalandi í fyrsta, og eina, leik sínum á HM. Þá voru ellefu menn á skýrslu en eftir leikinn greindust tveir leikmenn til viðbótar með kórónuveirusmit. Grænhöfðaeyjar eru þriðja liðið sem dregur sig úr keppni á HM. Tékkland og Bandaríkin hættu við þátttöku áður en mótið hófst og Norður-Makedónía og Sviss tóku sæti þeirra. Holland, sem Erlingur Richardsson stýrir, var þriðja varaþjóð inn á HM. Þýskaland og Ungverjaland mætast klukkan 19:30 í kvöld í úrslitaleik um toppsætið í A-riðli.
HM 2021 í handbolta Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Grænhöfðaeyjar Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira