Norska „neyðarliðið“ mátti sín lítils Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2021 16:13 Christian Berge stýrði Noregi ekki í Hvíta-Rússlandi í dag. Hann er með sitt aðallið í undirbúningi fyrir HM. Getty/Martin Rose Til þess að trufla ekki undirbúning sinn fyrir HM í Egyptalandi tefla Norðmenn fram varaliði í leikjum sínum við Hvíta-Rússland í undankeppni EM í handbolta.
Varaliðið, sem norskir fjölmiðlar hafa kallað „neyðarliðið“, tapaði 33-25 í Hvíta-Rússlandi í dag eftir að hafa verið 17-10 undir í hálfleik. Liðin mætast aftur í Noregi á föstudaginn. Undankeppni EM er rétt að hefjast en fyrir fram má búast við því að bæði liðin komist á endanum upp úr riðlinum og á EM, en að Ítalía og Lettland sitji eftir. Christian Berge landsliðsþjálfari Noregs vildi ekki láta leikina við Hvíta-Rússland trufla undirbúninginn fyrir HM. Vegna kórónuveirufaraldursins og sóttkvíarreglna í Noregi hefði getað reynst afar snúið eða hreinlega ómögulegt að spila leiki í Hvíta-Rússlandi og Noregi, og fara svo til Egyptalands á HM í næstu viku. Að minnsta kosti ef að upp hefði komið smit í leikmannahópnum. Því var ákveðið um miðjan desember að tefla ekki fram aðalliðinu í leikjunum við Hvít-Rússa. Aðallið Noregs undirbýr sig hins vegar fyrir HM með æfingum í Flensburg í Þýskalandi. Liðið ferðast svo með rútu til Danmerkur og leikur tvo vináttulandsleiki við Dani fyrir mótið. Fyrsti leikur Noregs á HM er við Frakkland 14. janúar. Líklegt er að Noregur og Ísland mætist í milliriðli á HM, en til þess þurfa bæði lið að enda meðal þriggja efstu í sínum fjögurra liða riðli. Ísland teflir fram sínu aðalliði í undankeppni EM, í tveimur leikjum við Portúgal á morgun og næsta sunnudag.
HM 2021 í handbolta EM 2022 í handbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira