Tíska og hönnun

Þrír Íslendingar dæma í keppni ADC*E

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Atli Þór Árnason, Dóri Andrésson og Erla María Árnadóttir eru dómnefndarfulltrúar í ár.
Atli Þór Árnason, Dóri Andrésson og Erla María Árnadóttir eru dómnefndarfulltrúar í ár. FÍT

Verðlaun Art Directors Club Europe (ADC*E) verða veitt í 30. sinn í Barcelona um miðjan desember en hátíðin fer að öllu leiti rafrænt í ár. Þrír fulltrúar Íslands verða í dómnefnd að þessu sinni.

Félag íslenskra teiknara er aðili að ADC*E og heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni, auk þess að standa fyrir FÍT keppninni ár hvert. Verðlaunin endurspegla allt það besta í grafískri hönnun á hverjum tíma en verðlaunaverk hvers lands eru send í keppnina sem eru svo dæmd af 60 fagaðilum alls staðar að úr Evrópu. Kristín Eva Ólafsdóttir er formaður FÍT.

Eitt af verðlaunuðum verkum á hátíðinni 2019 var verkefnið Útmeða eftir Viktor Weisshappel sem var unnið fyrir Rauða kross Íslands og Geðhjálp. Viktor var valinn bjartasta von Evrópu (e. Young Creative European of the year) sem er gífurlegur heiður fyrir ungan og upprennandi hönnuð.

Atli Þór Árnason, Dóri Andrésson og Erla María Árnadóttir eru dómnefndarfulltrúar FÍT í ár en þau eru samanlagt með margra áratuga reynslu af faginu. Úrslit vera kunngjörð 17. desember.


Tengdar fréttir

Verðlaunasýningar á Hafnartorgi vöktu athygli

Félag íslenskra teiknara opnaði tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic.

„Hver plata stendur ein og sér sem lítið meistaraverk“

Aðalverðlaun FÍT, Félag íslenskra teiknara, í ár hljóta Davíð Arnar Baldursson, Jón Sæmundur Auðarson og Ragnar Þórhallsson fyrir plötuumslög Fever Dream sem gefin var út af hljómsveitinni Of Monsters and Men.

Heimsþekktir hönnuðir á verðlaunasýningu á HönnunarMars

Félag íslenskra teiknara verður með tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020, sem fer fram dagana 24. til 28. júní. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.