Atvinnulíf

Hringdu í fjárfesta í níu ár og velta nú milljarði

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Benedikt Skúlason framkvæmdastjóri Lauf Forks.
Benedikt Skúlason framkvæmdastjóri Lauf Forks. Vísir/Vilhelm

„Ég held að mikilvægi nýsköpunar renni upp fyrir fólki á krepputímum. Þegar hriktir í gömlu stoðunum, þá verður skyndilega áþreifanlegt hve mikilvægt er að stöðugt leita að nýjum tækifærum,“ segir Benedikt Skúlason framkvæmdastjóri Lauf Forks. Að hans sögn er fjárfestingarumhverfi nýsköpunar á Íslandi hins vegar frekar vanþróað. „Þú þarft einfaldlega að draga fram símann og hringja í þá sem þú telur mögulega fjárfesta, einn af öðrum. Þetta er það sem við höfum gert síðastliðin níu ár, það slapp til. Þótt oft hafi reynt verulega á,“ segir Benedikt.

Lauf Forks er eitt þeirra fyrirtækja sem stofnað var fljótlega eftir bankahrun, eða árið 2011. Stofnendur fyrirtækisins eru þeir Benedikt Skúlason og Guðbergur Björnsson. Í dag eru hluthafar um 80 talsins. Þar eru stofnendur stærstir en síðan Nýsköpunarsjóður og TM.

Í upphafi var Lauf Forks stofnað utan um uppfinningu á demparagaffli fyrir reiðhjól sem fyrirtækið er með einkaleyfi á. Í dag er fyrirtækið einnig með alþjóðlegt einkaleyfi á stýri fyrir reiðhjól sem einnig er uppfinning félagsins. Þá eru tvær tegundir hjóla framleidd undir merkjum Lauf. Annars vegar malarhjólið Lauf True Grit og hins vegar alhliða reiðhjólið Lauf Anywhere.

Að sögn Benedikts skipti styrkur frá Tækniþróunarsjóði sköpum fyrir fyrirtækið á upphafsárunum.

„Ég hreinlega efast um að Lauf væri til í dag ef ekki væri fyrir Tækniþróunarsjóð. Styrkir þeirra gáfu okkur ákveðin fjármögnunargrunn, sem svo var hægt að byggja ofaná með sölu á hlutabréfum til einkafjárfesta,“ segir Benedikt.

Í dag er fyrirtækið hins vegar komið í þann stærðarflokk að ákveðið var að leita fjárfesta til Bandaríkjanna.

„Þegar fyrirtæki komast í næsta stærðarflokk, eins og Lauf með hratt vaxandi veltu sem nálgast einn milljarð, þá er ákveðið tómarúm hér á landi í fjármögnun,“ segir Benedikt og bætir við: 

Þegar ekki dugar lengur að hringja í staka einkafjárfesta, og kreista út nokkrar milljónir hér og nokkrar milljónir þar. Því leituðum við til Bandaríkjanna við þá 350-1400 milljóna króna fjármögnun sem við vonumst til þess að loka innan fjögurra vikna.“

Síðastliðið vor tók fyrirtækið ákvörðun um að umbylta sölukerfi félagsins og hætta samstarfi við um 100 söluaðila í Bandaríkjunum. Þess í stað er salan milliliðalaus og hefur bæði velta og framlegð aukist mjög í kjölfarið.

Benedikt áætlar að fyrirtækið loki fjármögnun í Bandaríkjunum á næstu fjórum vikunum.Vísir/Vilhelm

„Nýja sölukerfið okkar er auðskalanlegt, og við búum yfir miklu forskoti á samkeppnisaðilana. Bæði hvað varðar ýmsa einkaleyfavarða tækni í hjólunum sjálfum, sem og þau skilvirku framleiðsluferli við höfum komið upp. Þessu mun fylgja aukinn fjöldi starfsfólks. Að minnsta kosti að einhverju leyti á Íslandi. Vonandi að talsverðu leyti,“ segir Benedikt.

Og það er bjart framundan að sögn Benedikts:

„Í grófum dráttum þá gerum við ráð fyrir að um það bil tvöfalda veltu okkar árlega næstu árin. Í takt við kynningu nýrra vara og aukna markaðssetningu þeirra.“

Að mati Benedikts þyrfti umhverfi fjármögnunar fyrir nýsköpun á Íslandi þó að vera skilvirkari.

„Ég upplifi að fólk er almennt mjög opið fyrir fjárfestingu í nýsköpun, en það sem vantar sárlega á Íslandi er skilvirkari tenging á milli þeirra sem vilja fjárfesta og þeirra sem halda á tækifærunum,“ segir Benedikt og bætir við: 

Ég held að samfélagið í heild sé að verða af miklum verðmætum við þessa óskilvirkni. Fólk vill fjárfesta og frumkvöðlar vilja fjárfestingu, en aðilar vita ekki hver af öðrum.

En hvaða ráð myndir þú gefa aðilum sem hafa áhuga á að ná til fjárfesta erlendis frá?

„Varðandi fjármögnun erlendis, þá ráðlegg ég fólki að taka þau skref fyrr en seinna. Íslenskt fjárfestingaumhverfi fyrir hratt vaxandi fyrirtæki er takmarkað og það getur tekið tíma að byggja upp tengslanet og traust fjárfesta erlendis, þar sem maður hefur ekki sama persónulega tengslanetið,“ segir Benedikt.

Í stjórn Laufs eru: Skúli Bjarnason hæstaréttarlögmaður er formaður, Örn Skúlason, Guðberg Björnsson, Lilja Einarsdóttir og Davíð Freyr Albertsson.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×