Segir að LeBron sé besti leikmaður allra tíma Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. október 2020 07:30 LeBron James með NBA-bikarinn og Bill Russell bikarinn sem er veittur besta leikmanni úrslitanna. getty/Mike Ehrmann
LeBron James varð í nótt NBA-meistari í fjórða sinn þegar Los Angeles Lakers sigraði Miami Heat, 106-93. James var valinn besti leikmaður úrslitanna en þetta er í fjórða sinn sem hann fær þessi verðlaun og með þriðja liðinu sem er met. Eftir leikinn í nótt hrósaði Frank Vogel, þjálfari Lakers, LeBron í hástert og gekk svo langt að segja að hann væri besti leikmaður sögunnar. „Ég hef alltaf trúað á LeBron James. Hann er besti leikmaður sem körfuboltaheimurinn hefur séð. Þú fattar það kannski ekki fyrr en þú vinnur með honum á hverjum degi,“ sagði Vogel. „Þú þjálfar hann og sérð hvernig hann hugsar, hvernig hann aðlagast og leiðir liðið áfram. Þú heldur að þú vitir það en veist það ekki. Það hefur verið merkileg reynsla að þjálfa hann og sjá hann taka þetta lið sem komst ekki í úrslitakeppnina í fyrra og fara með það í draumalandið. Hann var frábær allt tímabilið og ég get ekki hrósað honum nægjanlega mikið.“ Í leiknum í nótt var LeBron með þrefalda tvennu; 28 stig, fjórtán fráköst og tíu stoðsendingar. Í úrslitaeinvíginu var hann með 29,8 stig, 11,8 fráköst og 8,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. LeBron varð meistari með Miami Heat 2012 og 2013, Cleveland Cavaliers 2016 og bætti svo fjórða meistaratitlinum með þriðja liðinu í safnið í nótt.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira