Kórónuðu ömurlega umgengni með falleinkunn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. september 2020 11:36 Ferðataska og sólgleraugu sem skilin voru eftir á borðinu. Þá voru snýtibréf um alla íbúð. Guðrún Valdís
Guðrún Valdís Þórisdóttir, sem leigir út íbúðir til ferðamanna á Selfossi, segist aldrei hafa lent í öðru eins og þegar hún opnaði dyrnar að einni íbúðinni í gær. Par á að giska á þrítugsaldri hafði skilið eftir allt í rúst og eftir athugasemdir um umgengnina gaf parið Guðrúnu einn í einkunn fyrir gistinguna. Guðrún Valdís birti myndir, öðrum til varnaðar, í Baklandi ferðaþjónustunnar í dag. Þar segir hún um að ræða par með breskt ríkisfang sem hafi tjáð sig á kínversku. Hún vonar að fleiri þurfi ekki að lenda í því að þurfa að kalla út auka mannskap vegna svo slæmrar umgengni. Aldrei lent í neinu í líkingu við þetta „Íbúðin var í rúst. Ég meira að segja tók ekki myndir strax. Þessar myndir eru eftir að ég tók aðeins á því,“ segir Guðrún Valdís. Ferðamennirnir yfirgáfu íbúðina í gær og þá blöstu ósköpin við. Guðrún Valdís var loks að sjá fyrir endann á þrifunum þegar blaðamaður sló á þráðinn um ellefuleytið í dag. Gestirnir virðast ekki hafa varið neinum tíma í að taka til eftir sig.Guðrún Valdís „Ég hef rekið hótelþjónustu í sjö ár og aldrei lent í öðru eins. Oft lent í einhverju slæmu en ekkert í líkingu við þetta.“ Myndirnar tala sínu máli en Guðrún Valdís segist ekki hafa fattað að taka myndir fyrr en hún var komin af stað í tiltekt. Hrúga af snýtibréfum á gólfi, mikil olíunotkun við eldamennsku og skemmd í borðplötu er meðal þess sem blasti við. Ferðamennirnir gistu í fjórar nætur í einni af sex íbúðum Hótel Þóristún apartments. Ekki var aðeins umgengnin slæm heldur skildu þau eftir sig ýmislegt, svo sem ferðatösku, skó, sólgleraugu og fleira. Guðrún sló á þráðinn til þeirra því hún taldi þau hafa gleymt þessum hlutum. Fékk einn í einkunn „Ég byrjaði símtalið blíðlega og spurði hvort þau vildu ekki koma að sækja hlutina,“ segir Guðrún. Þá var svarið að þau hefðu verið á hraðferð og ákveðið að skilja hlutina eftir. Í framhaldinu tilkynnti Guðrún þeim að hún hefði aldrei séð svo slæma umgengni á sjö árum í hótelrekstri og þau væru ekki velkomin aftur. Guðrún Valdís Gestir á Hótel Þóristún koma flestir í gegnum Booking.com þar sem margir gefa einkunn fyrir dvöl sína. Guðrún státar af 9,4 í einkunn og segist í góðum samskiptum við langsamlega flesta gesti sína. „Svo fékk ég einkunn frá þeim í morgun. Þau gáfu mér einkunnina einn,“ segir Guðrún. Þau tíðindi fékk hún á kafi í tiltekt í morgun. Bónus ofan á allt saman, segir Guðrún kímin. Augljóslega refsing fyrir tiltalið en fram til þessa höfðu þau talað fallega um íbúðina og hve frábært allt væri. „Þetta var svekkjandi eftir margra tíma þrif á íbúðinni. Ég þurfti að kalla út aukafólk til að taka íbúðina í gegn.“ Fólk gangi almennt vel um Guðrún segir flesta gesti sína á leiðinni í austurátt og því er líklegur áfangastaður parsins Vík, Kirkjubæjarklaustur eða í þeirri grennd. Fáir ferðamenn séu á ferli núna en þeir sem þó eru dvelja hér í lengri tíma vegna kröfu um sóttkví við komu. Þannig sé hluti af gestum hennar fólk sem dvelji í sóttkví, lögum samkvæmt, áður en það heldur áfram för sinni um landið. Svo mikil olía var notuð við eldamennsku að Guðrún segist hafa þurft að þrífa alla íbúðina. Allt sé klístrað.Guðrún Valdís Varðandi reksturinn á þessum skrýtnu tímum segir hún hann ganga furðu vel. „Ég er heppin. Ég er með sex íbúðir og það hefur verið nóg að gera. Fólk hefur getað komið í sóttkví þarna. Ég get sennilega ekkert kvartað miðað við ástandið allt í kring,“ segir Guðrún. Fólk gangi almennt rosalega vel um og hún sé því alls ekki von þessu. „Íbúðirnar eru rosalega fínar og mín reynsla er að fólk gangi vel um fyrir vikið,“ segir hún. Von er á næstu gestum og hún getur því farið að gleyma þessu máli. „Þetta er bara leiðinlegt. Sérstaklega ef maður er að reyna að gera sitt besta.“ Guðrún ValdísGuðrún ValdísGuðrún ValdísGuðrún ValdísGuðrún ValdísGuðrún ValdísGuðrún ValdísGuðrún ValdísGuðrún Valdís
Ferðamennska á Íslandi Árborg Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Viðskipti innlent Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Viðskipti innlent Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Viðskipti innlent Fleiri fréttir 4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Fegurð er glæpur kom út í mínus Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Heildareignir einstaklinga jukust um rúm fimm prósent á síðasta ári Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Bjørn Richard til liðs við Athygli Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Hafsteinn Dan nýr lagaprófessor við HR Ráðin nýr yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar Hafa ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun „Þetta hefur slæm áhrif á heimilin sem hafa augljóslega minna á milli handanna“ Flytja Friday's innan Smáralindar og fjölga stöðunum Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X Íslandsbanki hækkar líka vexti verðtryggðra lána Séreign inn á húsnæðislán hafi nýst sterkefnuðum mest Ver vaxtahækkunina: Ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun Ekki króna í þrotabúi Base parking Sjá meira