Frúin færir honum kaffi í rúmið, fangelsisflótti og fornmunir í pýramídum Rakel Sveinsdóttir skrifar 5. september 2020 10:00 Ólafur Þór Jóelsson framkvæmdastjóri Skemmtisvæðis Smárabíós. Vísir/Vilhelm
Ólafur Þór Jóelsson framkvæmdastjóri Skemmtisvæðis Smárabíós segir nýjasta æðið í heiminum í dag vera flóttaleikir í sýndarveruleika. Þar getur fólk í sýndarheim flúið úr fangelsi, fundið fornmuni í pýramídum og leyst alls kyns þrautir. Flóttarleikirnir eru hluti af nýju skemmtisvæði sem verið er að standsetja í Smárabíó. Þá segir Ólafur að nú styttist í PlayStation 5. Ólafur er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Þar spyrjum við alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefni. Hvenær vaknar þú á morgnana? Vildi geta sagt að ég sofi í súrefnistjaldi og vakni klukkan hálf sex en verð að viðurkenna að ég er yfirleitt vakinn af frúnni á milli klukkan sjö og átta. Vakna þá oftar en ekki með rjúkandi kaffibolla við hliðina á mér.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Þegar ég er kominn á lappirnar, þá tekur við kaffibolli númer tvö og svo læði ég mér í tölvuna til að setja upp verkefni dagsins. Er heppinn að hafa brennandi áhuga á því sem ég er að gera og að finnast verkefnin spennandi.“ Eru tafir á stórmyndum í bíó vegna Covid? „Það hafa vissulega orðið tafir á stórmyndunum, en sem betur fer horfir til betri vegar í þeim málum. Til dæmis frumsýndum við stórmyndina Tenet í síðustu viku og fór hún vel af stað. Greinilegt að Íslendingar eru þyrstir í að sjá stórmyndirnar í fullkomnum bíósölum. Þessa dagana erum við að setja fleiri stoðir undir rekstur Smárabíó með því að stækka skemmtisvæðið okkar. Þar tökum við á móti hópum sem vilja eiga eftirminnilega stund og er svæðið okkar mjög vinsælt hjá þeim sem eru að halda uppá afmæli, vinnustaðir sem vilja hrista hópinn saman, gæsa- og steggjahópar og í raun allir sem vilja upplifa skemmtun í hæsta gæðaflokki. Við erum að bjóða uppá fullkomið lasertag, karaoke herbergi, flóttaleiki (e. Escape Room) í sýndarveruleika, leiktæki og margt fleira. Ólafi leiðist ekki í vinnunni en treystir á dagatalið í Outlook til að halda utan um skipulagið.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? Þessa dagana á stækkun skemmtisvæðisins hug minn allan, auk þess sem við erum að undirbúa komu PlayStation 5 tölvunnar til landsins. Við fengum svæði til afnota í Smáralind þar sem gamli Vetrargarðurinn var og erum að setja þar upp nýtt lasertag svæði, rafíþróttasvæði og stórt svæði þar sem gestir okkar geta upplifað flóttaleiki í sýndarveruleika, en það er nýjasta æðið í heiminum í dag. Þar geta allt að átta manns horfið inní sýndarheim og reynir á samvinnu og samskipti þeirra á milli til að leysa þrautirnar. Þarna eru til dæmis leikir þar sem þarf að sleppa úr fangelsi, fara til Chernobyl og koma í veg fyrir þá atburðarrás, finna fornmuni í pýramída og margt fleira. Í þessum leikjum gleyma leikmenn stund og stað og upplifa allskyns tilfinningar á borð við lofthræðslu, spennu, gleði og sigurtilfinningu.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég er mjög lánsamur að vinna með fólki sem er uppfullt af ástríðu og áhuga á verkefnunum sem auðveldar vinnuna til muna og á sama tíma skipulagið. Annars er ég mikill Outlook maður og er innhólfið eins og minn verkefnalisti. Reyni alltaf að halda því undir einni síðu eftir lok dags. Svo er ég með allskyns möppur í Outlook-inu til að flokka og svo er dagatalið minn vegvísir í lífinu. Má segja að ég hreinlega standi og sitji eins og dagatalið segir.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Að öllu jöfnu er ég sofnaður fyrir miðnætti á virkum dögum, á því eru nokkrar undantekningar og felast þær aðallega í því að það er kominn út nýr og spennandi tölvuleikur. Eins hef ég verið að streyma tölvuleikjum á Twitch og Stöð 2 eSport á kvöldin og eiga þær útsendingar til að dragast aðeins yfir miðnætti. Þá er mikilvægt að geta verið hljóðlátur eins og ninja hermaður svo ég geti læðst uppí án þess að vekja konuna.“
Kaffispjallið Tækni Tengdar fréttir „Að miðaldra yfir okkur“ í golfi og eiginmaðurinn færir frúnni kaffi í rúmið Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Lyfju er gestur kaffispjallsins þessa helgina. 29. ágúst 2020 10:00 Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Forstjóri Deloitte, Þorsteinn Pétur Guðjónsson er gestur kaffispjallsins þessa helgina. 22. ágúst 2020 10:00 Mest lesið Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Trendin 2026: Gervigreindin mikilvæg og laun mögulega auglýst Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Framkvæmdastjóri Bónus: „Ég er svona „aulahúmor“-stríðinn“ Spilavinir í vinnunni: Efla samskipti, samvinnu og hrista saman hópinn Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ Sjá meira
„Að miðaldra yfir okkur“ í golfi og eiginmaðurinn færir frúnni kaffi í rúmið Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Lyfju er gestur kaffispjallsins þessa helgina. 29. ágúst 2020 10:00
Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Forstjóri Deloitte, Þorsteinn Pétur Guðjónsson er gestur kaffispjallsins þessa helgina. 22. ágúst 2020 10:00