Veiði

1.470 laxa vika í Eystri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
Það er ennþá mikil ganga í Eystri Rangá en síðasta vika skilaði 1.470 löxum á land.
Það er ennþá mikil ganga í Eystri Rangá en síðasta vika skilaði 1.470 löxum á land. Mynd: KL

Veiðin í Eystri Rangá hefur verið með einu orði rosaleg á þessu sumri og það er löngu orðið ljóst að gamla metið í ánni er að falla. 

Gamla metið í ánni er frá árinu 2007 en þá veiddust 7.473 laxar og til samanburðar þegar nýjar veiðitölur komu í gær á vefinn er áinn komin í 6.791 lax með vikuveiði upp á 1.470 laxa. Þeir sem hafa farið í ánna frá miðjum júlí vita nákvæmlega hver staðan er. Hún er bara teppalögð af laxi! Á sumum stöðum er staðan þannig að þú þarft ekki tíu köst til að ná þeim fimm löxum sem þú mátt hirða á vakt og þegar maðkurinn fór niður í byrjun maðkatímabilsins þurfti oft ekki mikið meira en að renna honum fimm sinum niður í einhvern af veiðistöðum sem halda eitthvað af laxi og þá er ég ekki að tala í samanburði við til dæmis þá staði sem halda kannski nokkur hundruð löxum.

Ef skilyrðin haldast góð áfram og áinn fær að renna óskoluð er ljóst að talan 10.000 laxar á timabilinu er bara tvær til þrjár vikur í burtu og þá verður samt nóg eftir af veiðitímanum til að koma henni jafnvel í 12-13.000 laxa. Þeir sem hafa verið að fara í heldur laxlausa veiðitúra á þessu ári eru að stökkva á alla þá daga sem bjóðast þessa dagana og það er ljóst að eftirspurnin eftir veiðidögum er mikil.






×