32 fiska holl í Eldvatni Karl Lúðvíksson skrifar 19. maí 2020 11:00 Hjörleifur Steinarsson með vænan birting úr Eldvatni.
Á þessum árstíma fer fréttum af sjóbirtingslóðum yfirleitt fækkandi en það er samt ekki þannig að veiðin sé öll úti. Það sem af er þessu vori hafi fréttir af góðri veiði verið reglulegar úr ánum fyrir austan og Veiðivísir átti svo sem von á því eins og aðrir að það færi að draga úr veiði en það er annað á teningnum. Hjörleifur Steinarsson og félagar voru við veiðar þar um helgina og gerðu fantagóða veiði en samtals lönduðu þeir 32 vænum birtingum. "Við félagarnir fórum til veiða í Eldvatni í Meðallandi um síðustu helgi, við fórum af stað með hóflegar væntingar því að einhvern veginn bjóst maður við að meirihluti fisksins væri genginn til sjávar. Það er skemmst frá því að segja að við lentum í veislu! 32 fiskar á land á 4 stangir, allt 65- 82 cm fiskar með örfáum undantekningum" sagði Hjörleifur Steinarsson í samtali við Veiðivísi. "Meirihluti veiðinnar var veiddur á púpu, uppstream, fiskur var mjög víða og boy ó boy sá var vel haldinn! Spikfeitir orkuboltar sem fóru niður á undirlínu trekk í trekk. Staðirnir sem voru að gefa okkur best voru Hundavað, Þórðarvörðuhylur og Skurðsendi (Gamlahlíð). Eldvatnið er magnað veiðisvæði, gríðarfallegir veiðistaðir og umhverfið magnað, eitt af mínum allra uppáhalds. Veiðifélagarnir ekki af verri endanum, Róbert Þórhallsson, Helgi Jónsson,Haraldur Árni Haraldsson og Haraldur Haraldsson Jr." bætti Hjörleifur við.
Stangveiði Mest lesið Fyrsti laxinn kominn í Laxá í Kjós Veiði RISE fluguveiði- hátíðin fer fram 14. apríl Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Ein af vinsælustu flugum sumarsins Veiði Langá opnaði í morgun með tveimur löxum Veiði Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum sett á Miklatúni í dag Veiði Fleiri fréttir af opnunum laxveiðiánna Veiði Laxagöngur víða nokkuð góðar Veiði