Tryggvi skoraði 9 stig í öruggum sigri | Thelma Dís gerði 13 Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. mars 2020 09:45 Tryggvi Snær í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Bára
Tryggvi Snær Hlinason gerði níu stig í góðum 10 stiga sigri Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Þá skoraði Thelma Dís Ágústsdóttir 13 stig í bandaríska háskólakörfuboltanum er skóli hennar, Ball State, vann sinn 20. leik á tímabilinu. Tryggvi Snær og félagar byrjuðu leik sinn ekki vel og voru tveimur stigum undir á heimavelli þegar 1. leikhluta var lokið. Þeir snéru taflinu heldur betur við í 2. leikhluta sem þeir unnu með níu stiga mun og staðan því 53-46 Zaragoza í vil er liðin gengu til búningsherbergja. Zaragoza hóf síðari hálfleikinn af sama krafti og vann á endanum 10 stiga sigur. Lokatölur 97-87. Ásamt því að skora níu stig þá tók Tryggvi fimm fráköst á þeim 17 mínútum sem hann spilaði. Zaragoza er eftir sigurinn í 3. sæti spænsku deildarinnar. Ball State háskólinn, lið Thelmu, vann sinn 20. leik eftir nauman sigur gegn Central Michigan háskólanum. Þar spilaði frábær 1. leikhluti hvað stærstan þátt en Thelma og stöllur hennar unnu hann 16-6. Staðan í hálfleik var svo 32-25 Ball State í vil sem vann á endanum nauman fimm stiga sigur. Fyrir leikinn var Central Michican í 1. sæti MAC West deildarinnar og því um einkar góðan sigur að ræða hjá Ball State sem er enn í 2. sæti deildarinnar.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira