Valdefling kvenna – frasi eða framfarir? Heimsljós kynnir 8. janúar 2020 10:30 Stúlkur sem taka þátt í verkefni Hjálparstarfsins í Kampala, Úganda. gunnisal
Hjálparstarf kirkjunnar fagnar fimmtíu ára starfsafmæli á þessu ári en formleg ákvörðun um hjálparstofnun á vegum íslensku þjóðkirkjunnar var tekin á fundi kirkjuráðs 9. janúar 1970. Málþing um hjálparstarf í tilefni afmælisins verður haldið á morgun á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík milli klukkan 16.30 og 18.30 með yfirskriftinni: Valdefling kvenna – frasi eða framfarir? Hjálparstarfið hefur frá stofnun haft það hlutverk að veita fólki sem býr við sára fátækt neyðaraðstoð, hver svo sem orsök neyðarinnar er. Aðstoðin er veitt þannig að hún sé valdeflandi, - að hún sé raunveruleg hjálp til sjálfshjálpar. Markhópar Hjálparstarfsins, hvort sem er í verkefnum hér á Íslandi, á átaka- eða náttúruhamfarasvæðum eða í þróunarsamvinnuverkefnum í einna fátækustu samfélögum heims, er fólkið sem býr við erfiðustu aðstæðurnar og getur síst veitt sér björg upp á eigin spýtur. „Á málþinginu á afmælisdaginn ætlum við að fjalla um valdeflingu kvenna og leitast við að svara því hvort sú aðferð sé aðeins frasi í hjálparstarfi eða hvort hún leiði til raunverulegra framfara í samfélögum þar sem henni er beitt,“ segir Kristín Ólafsdóttir fræðslufulltrúi Hjálparstarfsins. Frú Eliza Jean Reid, forsetafrú, og Magnús Árni Skjöld Magnússon, forseti félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Bifröst, flytja erindi en þau eru bæði virk í baráttunni fyrir kynjajafnrétti. Þá segir Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, frá þróunarsamvinnu í Eþíópíu og Úganda og félagsráðgjafarnir Sædís Arnardóttir og Vilborg Oddsdóttir fjalla um virkniverkefni Hjálparstarfsins hér heima á Íslandi. Þá fjalla þátttakendur í verkefnum um reynslu sína af þeim. Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands og verndari stofnunarinnar, flytur ávarp í upphafi málþings.Viðburðurinn á Facebook. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi , upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent