Atvinnulíf

Leiðir til að lifa af leiðinlegt föstudagssíðdegi

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ertu að bíða eftir því að komast í helgarfrí?
Ertu að bíða eftir því að komast í helgarfrí? Vísir/Getty

Það kannast margir við það að fljótlega eftir hádegi á föstudögum líður okkur eins og það sé ekkert að gera í vinnunni annað en að bíða eftir því að komast í helgarfrí. Við verðum eirðarlaus, vöfrum á netinu, nennum ekki að byrja á neinu nýju og tíminn líður hægt.

En í stað þess að horfa stanslaust á klukkuna eru hér nokkur ráð til að sporna við þeirri tilfinningu að föstudagssíðdegin geti verið grútleiðinlegur tími. 

1. Geymdu skemmtilegu verkefnin

Sparaðu skemmtilegustu verkefnin fram yfir hádegi og þá helst þannig að þú gleymir þér í þeim síðustu einn til tvo tímana áður en þú ferð heim.

2. Lærðu eitthvað nýtt

Er eitthvað í vinnunni þinni sem þú hafðir hugsað þér að prófa eða læra á? Er eitthvað sem samstarfsfélaginn þinn kann og gæti kennt þér? Ef svo er, er tilvalið að nýta eftir hádegi á föstudögum til að læra eitthvað nýtt.

3. Hreyfðu þig

Það kannast margir við syfju síðdegis og hún á jafnvel til að gera fyrr vart við sig á föstudögum ef verið er að bíða eftir því að komast heim. Að standa upp, hreyfa sig, heilsa upp á samstarfsfélaga, fá sér aukakaffibolla eða kíkja út í ferskt loft getur stytt biðtímann og hrist af okkur föstudagsslenið.

4. Taktu forskot á mánudaginn

Síðan er upplagt að búa til verkefnalista fyrir mánudaginn og athuga hvort þar séu mögulega einhver verkefni sem þú gætir skellt þér í strax. Það getur verið góð tilfinning að vera á undan áætlun og fara þannig inn í gott helgarfrí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×