Veiði

Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Urriðafoss er aflahæsta veiðisvæðið það sem af er sumri.
Urriðafoss er aflahæsta veiðisvæðið það sem af er sumri. Mynd: Iceland Outfitters

Vikulegar veiðitölur birtast á vefsíðu Landssambands Veiðifélaga og sína stöðuna í ánum hverju sinni og það er gaman að sjá hvað það gengur vel víða.

Veiðisvæðið við Urriðafoss í Þjórsá er á toppnum með 509 laxa á land á aðeins fjórar stangir svo það er ekki nóg með að svæðið sé það aflahæsta yfirheildina, það er líka með lang hæsta aflann á stöng. Þessar tölur eiga þó líklega eftir að breytast þegar líður á tímabilið en þó er líklegt að aðeins heildartalan sé í hættu. Heildarveiðin í einhverri ánni gæti og fer líklega yfir Urriðafoss en það er ólíklegt að nokkur á nái þessari meðalveiði á stöng.

Norðurá er í öðru sæti með 312 laxa og þar gengur veiðin vel en eins og víða á vesturlandi er þess beðið með mikilli spennu að sjá hvað stóri júlí straumurinn sem er 9. júlí skilar í árnar en þetta er yfirleitt sá straumur sem skilar stærstu smálaxagöngunum.

Þverá og Kjarrá eru komnar í 241 lax sem er ekki nema 54 löxum undir veiðinni 2015 en það sumar fór veiðin í 2.364 laxa svo þarna gætu Þverá og Kjarrá átt mikið inni en góðar göngur eru í árnar þessa dagana.

Næstu ár á listanum eru Eystri Rangá með 163 laxa og þar gengur mjög vel og það er stígandi í göngum í ána eins og annars staðar. Haffjarðará er svo í fummta sæti með 135 laxa. Listann í heild sinni má finna á www.angling.is






×