Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á hátíðinni með vel völdum einstaklingum, sem og lifandi samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.
Garðar og Hlín Helga ræða í dag við Arnhildi Pálmadóttur arkitekt, Eygló Margréti Lárusdóttur fatahönnuð og stofnanda vörumerkisins EYGLÓ, Baldur Helga Snorrason arkitekt og Arnar Inga Viðarsson, grafískan hönnuð um hátíðina, dagskrá dagsins og arkitektúr í sinni fjölbreyttustu mynd.
Þátturinn verður sýndur á Vísi klukkan þrjú í dag og þá er hægt að horfa á hann í spilaranum hér að neðan.
Hönnunarspjallið er liður í dagskrá Studio 2020 á HönnunarMars, sem er tilraunavettvangur á HönnunarMars 2020, og ætlað er að miðla efni hátíðarinnar á ýmsu formi á meðan á henni stendur og í kjölfarið. Markmiðið er að veita innsýn í hugskot hönnuða, viðfangsefni og hugmyndir um framtíðina. Auk þess að hvetja til breiðs samtals um hönnun og arkitektúr.

Umsjón með hönnunarspjallinu hafa Hlín Helga Guðlaugsdóttir stjórnandi DesignTalks og Garðar Eyjólfsson fagstjóri meistaranáms í hönnun við LHÍ. Upptaka er í höndum Einars Egilssonar og útlit hefur Steinn Einar Jónsson hannað. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn en hina tvo má finna undir tengdum greinum hér fyrir neðan.
HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.
HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.