Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Hörpu í kvöld. Vök, Auður, Hildur Guðnadóttir, Hatari og Grísalappalísa voru á meðal vinningshafa. Veitt voru 38 verðlaun auk heiðursverðlaunanna, sem sópransöngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir hlaut að þessu sinni. Raggi Bjarna var heiðraður á þessari uppskeruhátíð í tónlist.
Auður var valinn söngvari ársins og flytjandi ársins auk þess sem lagið hans Enginn eins og þú var valið popplag ársins. Tónlistarkonan Margrét Rán Magnúsdóttir í Vök var valin söngkona ársins og lagahöfundur ársins en Vök átti líka poppplötu ársins, In the Dark. Alla verðlaunahafana má finna hér neðar í fréttinni.
Sigurganga Hildar Guðnadóttir heldur áfram og hlaut hún tvenn verðlaun fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Chernobyl. Grísalappalísa átti opnunaratriði hátíðarinnar og hlaut tvenn verðlaun í kvöld.
Hatari í Eurovision var valinn tónlistarviðburður ársins og myndbandið við Hatrið mun sigra var valið tónlistarmndband ársins. Um leikstjórn sáu þeir Baldvin Vernharðsson og Klemens Hannigan.
Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, átti að veita tvenn verðlaun á hátíðinni en afboðaði sig fyrr í dag.
Ragga Bjarna var minnst á hugljúfan hátt þegar Katla Vigdís og Arnar Guðjónsson fluttu lagið Barn og Oddur Arnþór og Salka Sól fluttu í kjölfarið Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig við undirleik Kjartans Valdemarssonar, Þorgríms Jónssonar og Magnús Trygvasonar Eliassen. Úr hópi tilnefndra komu fram Grísalappalísa, Lára Rúnarsdóttir ásamt hljómsveit og strengjaleikurum, Hatari ásamt GDRN og kór, Siggi String Quartet, tríó Inga Bjarna Skúlasonar og Between Mountains. Kynnir kvöldsins var Bergur Ebbi.

Verðlaunahafar Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2019:
Önnur tónlist: Opinn Flokkur, þjóðlaga- og heimstónlist, kvikmynda- og leikhústónlist
Útgáfa ársins - Kvikmynda- og leikhústónlist
Hildur Guðnadóttir – Chernobyl
Plata ársins - Opinn flokkur
Kristín Anna – I must be the devil
Plata ársins - Þjóðlaga- og heimstónlist
Ásta – Sykurbað
Lag/tónverk ársins - Önnur tónlist
Lára Rúnars – Altari
Upptökustjórn ársins
Hildur Guðnadóttir og Sam Slater – Chernobyl
Plötuumslag ársins
Kristín Anna – I must be the devil
Ragnar Helgi Ólafsson – Hönnun og uppsettning
Ari Magg – Ljósmynd

Rokk, popp, raftónlist, rapp og hiphopp
Plata ársins - Popp
Vök - In the Dark
Plata ársins - Rokk
Grísalappalísa - Týnda rásin
Plata ársins - Raftónlist
Bjarki - Happy Earthday
Plata ársins - Rapp og hipp hopp
Cell7 - Is anybody listening?
Lag ársins - Popp
Auður - Enginn eins og þú
Lag ársins - Rokk
Hipsumhaps - Fyrsta ástin
Lag ársins - Raftónlist
Sykur - Svefneyjar
Lag ársins - Rapp og hipp hopp
Floni - Falskar ástir

Söngkona ársins
Margrét Rán Magnúsdóttir (Vök)
Söngvari ársins
Auðunn Lúthersson
Lagahöfundur ársins
Margrét Rán Magnúsdóttir (Vök)
Textahöfundur ársins
Gunnar Ragnarsson og Baldur Baldursson (Grísalappalísa)
Flytjandi ársins:
Auður
Tónlistarviðburður ársins
Hatari í Eurovision
Bjartasta von Rásar 2 og Íslensku tónlistarverðlaunanna
Hipsumhaps
Tónlistarmyndband ársins 2019 – Albumm.is og Íslensku tónlistarverðlaunin:
Hatari – Hatrið mun sigra
Leikstjóri: Baldvin Vernharðsson & Klemens Hannigan
Sígild og samtímatónlist
Plata ársins
Concurrence - Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar
Tónverk ársins
Crevace, konsert fyrir flautu og fagott eftir Páll Ragnar Pálsson
Viðburður ársins – Einstakur viðburður
Hljóðön – Sýning tónlistar, Hafnarborg.
Viðburður ársins – Tónlistarhátíðir
Myrkir músíkdagar
Flytjandi ársins – Einstaklingar
Bjarni Frímann Bjarnason
Flytjandi ársins – Hópar
Elektra Ensemble
Söngvari ársins
Benedikt Kristjánsson
Söngkona ársins
Dísella Lárusdóttir
Bjartasta vonin - Sígild og samtímatónlist
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir

Djass og blús
Plata ársins
Tómas Ragnar Einarsson - Gangandi bassi
Tónverk ársins
Avi
Tónskáld: Andrés Þór
Tónlistarflytjandi ársins - hópar
ADHD
Tónlistarflytjandi ársins - einstaklingar
Sunna Gunnlaugsdóttir
Tónlistarviðburður ársins
Tónleikaröð Stórsveitar Reykjavíkur
Lagahöfundur ársins
Einar Scheving
Bjartasta vonin
Ingi Bjarni Skúlason
Heiðursverðlaun Samtóns og Íslensku tónlistarverðlaunanna
Sigrún Hjálmtýsdóttir - Heiðursverðlaunahafi Íslensku tónlistarverðlaunanna