Vetrarblað Veiðimannsins komið út Karl Lúðvíksson skrifar 16. desember 2019 08:22
Vetrarblað Veiðimannsins er komið út og er á leið til lesenda. Fjölbreytt efni er í blaðinu að vanda og víða komið við. Tilhlökkun veiðimanna fyrir komandi veiðisumri fer nú vaxandi og tilvalið að stytta sér óralanga biðina til næsta vors með góðum veiðisögum. Glæsilegar og dýrmætar fjaðraflugur Harðar Filipssonar, fluguhnýtara, eru birtar í blaðinu en hann á verðmætt safn flugna sem hafa ekki komið mörgum fyrir sjónir til þessa.Flugurnar leika í höndum Harðar sem hnýtir þær að hætti gömlu meistaranna. Forsíðu blaðsins prýðir Green Highlander sem Hörður er við það að leggja lokahönd á en hann á einstakt safn flugna sem aðalsmaðurinn Traherne hannaði á sínum tíma og kom með eins og sprengja inn á markaðinn undir lok 19. aldar. Veiðimaðurinn rýnir í hvernig innlendur veiðileyfamarkaður varð til á síðustu áratugum og hvernig stangveiði varð að almenningsíþrótt á Íslandi. 80 ára afmælisári SVFR eru gerð góð skil í blaðinu en boðið var upp á fjölda viðburða í sumar til að minnast frumherjanna og fagna veiðidellunni. Á nýju ári verður Veiðimaðurinn, málgagn stangveiðimanna, jafnframt 80 ára og því fjölmörg tilefni til að fagna.Veiðiverslunin Veiðimaðurinn fagnar einnig 80 ára afmæli 2020. Við kynnum okkur söguna og fágætt veiðistangastafn Ólafs Vigfússonar sem á verslunina í dag ásamt eiginkonu sinni Maríu Önnu Clausen. Kvennadeild SVFR lætur sífellt meira að sér kveða og í Veiðimanninum er fjallað um veiðiferð deildarinnar næsta sumar. Ungir veiðimenn segja frá sínum fyrstu köstum en þeir fóru með gamlar græjur langafa síns í Elliðavatn og byrjuðu að veiða þrátt fyrir að foreldrar þeirra væru algjörlega lausir við áhuga á stangveiði. Í dag eru þeir með ört vaxandi veiðidellu og einstaklega efnilegir. Veiðimaðurinn lærir að lesa vatn með Sigurði Héðni sem hefur fært til bókar áratuga veiðireynslu sína á bakkanum og rýnt er í nýja bók um Hofsá og Sunnudalsá. Matreiðslumeistararnir Viktor Örn Andrésson, sem rekur veiðihús SVFR, og Hinrik Örn Lárusson reiða fram hátíðarrétti sem sóma sér vel hvort sem er um jól eða áramót. Veiðimenn með valkvíða fyrir matseðli komandi hátíða geta því leitað í smiðju þeirra. Ýmislegt fleira spennandi er borið á borð í blaðinu. Vetrarblað Veiðimannsins er nr. 209 en það hefur komið út frá árinu 1940 og frætt og kætt fjölmargar kynslóðir veiðimanna í áratugi. Hægt er að kaupa eintök af blaðinu á skrifstofu SVFR á opnunartíma en skynsamlegast er að gerast áskrifandi með tölvupósti á svfr@svfr.is. Áskrift að blaðinu er innifalin í félagsgjaldi SVFR en blaðið kemur út tvisvar á ári. Því ekki að bætast í hópinn?
Stangveiði Mest lesið Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Mikið af vænum fiski veiðist í Elliðavatni Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Besti tíminn framundan í Stóru Laxá Veiði Góð veiði í vötnum fyrir norðan um helgina Veiði 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði 400 Urriðar á land í Laxá í köldu veðri Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði 94 sm hængur úr Laxá í Kjós Veiði