Erfiðleikar mannsins Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 25. nóvember 2019 09:00 Kokkáll er fyrsta skáldsaga Dóra DNA.
Stjörnur: *** 1/2 Kokkáll Dóri DNA Útgefandi: Bjartur Fjöldi síðna: 336 Fyrsta skáldsaga Halldórs Laxness Halldórssonar, eða Dóra DNA, er einstaklega vel heppnuð og fjallar um undarlegt tilfinningalíf mannskepnunnar á skemmtilegan og frumlegan hátt. Í Kokkál fáum við að kynnast einum slíkum; óöruggum, bældum, ungum karlmanni sem vinnur nokkuð litlaust og leiðinlegt starf á auglýsingastofu, Össa. Sagan tekur á erfiðum spurningum um lífið og tilveruna og hverfist öll um Össa sem neyðist til að horfast í augu við vandamál sín, sem hafa elt hann úr æsku, eftir afdrifaríka nótt í Chicago þegar hann leyfði öðrum karlmanni að sofa hjá kærustunni sinni. Viðfangsefnið er nýstárlegt og áhugavert að mörgu leyti og tekur höfundurinn þannig á grundvallarerfiðleikum fólks, í samskiptum við sjálft sig og aðra, í gegnum mann með nokkuð óhefðbundnar kenndir. Hvers vegna vill aðalpersónan að aðrir menn sængi hjá konunni hans? Endurspeglar það sjálfseyðingarhvöt hans og undirgefni eða er það kannski á einhvern hátt valdeflandi? Þetta eru hlutir sem lesandi spyr sig við lesturinn og aðalpersónan spyr sig jafnvel sjálf því hún virðist í mestu erfiðleikum með að átta sig á því hver hún raunverulega sé. Það er jafnvel gegnumgangandi þema bókarinnar; allar persónurnar virðast vera í stöðugri leit að sjálfum sér og framkvæma leitina á missmekklegan og árangursríkan hátt, að einni persónu undanskilinni. Andrea, æskuvinkona Össa, sker sig úr sem eina persónan sem virðist vera með allt sitt á hreinu og nær að njóta lífsins í botn en Andrea er með Downs-heilkenni. Höfundurinn skrifar skemmtilega og frásagan rennur óhindrað og nokkuð skipulega áfram. Húmor er ekki beint í fyrirrúmi en það má þó greina undirliggjandi háð hjá höfundinum sem ræðir erfiðleika mannsins á undarlega léttan og tilgerðarlausan hátt. Hugmyndin að sögunni er frumleg og skemmtileg og atburðarásin er fremur ófyrirsjáanleg sem heldur lesandanum við efnið. Persónusköpun Dóra stendur upp úr og lýsingar hans á hugmyndum og hugsjónum þeirra í formi skemmtilegra líkinga. Sumt hefði mátt fara betur, í seinni hluta bókarinnar sérstaklega, eins og eðlilegt er í fyrstu skáldsögu en hér er um að ræða höfund sem verður mjög spennandi að fylgjast með í framtíðinni.Niðurstaða: Frábær frumraun í skáldsagnagerð. Lauflétt frásögn sem tekur þó á stórum spurningum um eðli mannsins.
Birtist í Fréttablaðinu Bókmenntir Gagnrýni Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Sjá meira