Jafnt í stórleiknum í Madríd Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. nóvember 2019 22:00 vísir/getty Real Madrid og Paris Saint-Germain gerðu jafntefli í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Bæði lið voru komin áfram áður en var flautað til leiks eftir að Club Brugge og Galatasaray gerðu jafntefli fyrr í kvöld. Karim Benzema kom Real yfir á 17. mínútu og skildi mark hans liðin að í hálfleik. Benzema skoraði annað mark sitt á 79. mínútu eftir sendingu Marcelo og virtist vera að tryggja Real sigurinn. Kylian Mbappe klóraði hins vegar í bakkann fyrir PSG aðeins tveimur mínútum seinna og varamaðurinn Pablo Sarabia jafnaði svo metin á 83. mínútu. Bæði lið reyndu að sækja sigurmarkið, Real komst hvað næst því þegar Gareth Bale skaut í stöngina úr aukaspyrnu í uppbótartíma en sigurmarkið kom ekki og var 2-2 jafntefli niðurstaðan. PSG er með 13 stig á toppi riðilsins og Real Madrid 8 þegar ein umferð er eftir af riðlakeppninni. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti