Aftur til fortíðar í fimm þáttum Bryndís Silja Pálmadóttir skrifar 7. nóvember 2019 08:30 Ragna Sigurðardóttir rithöfundur horfir til fortíðar. Fréttablaðið/Valli
Vetrargulrætur – sögur Ragna Sigurðardóttir Útgefandi: Mál og Menning Fjöldi síðna: 254 Í sagnasafninu Vetrargulrætur – sögur reiðir rithöfundurinn Ragna Sigurðardóttir fram fimm sögur þar sem oftast er horft til fortíðar. Þótt persónurnar séu skapaðar í ólíkum tíma og rúmi eiga þær ýmislegt sameiginlegt og er listin, eða öllu heldur listsköpunin, þráður í flestum sögunum. Vetrargulrætur hefst í íslenskum samtíma og lýkur á 18. öld. Í fyrstu sögunni fær lesandi að kynnast Hildi, myndlistarkonu sem hefur störf á frístundaheimili um miðjan vetur og glímir við afleiðingar áfalls. Ragna eyðir ekki meira púðri í samtímann og í næstu sögu stekkur hún með lesanda nær þrjátíu ár aftur í tímann, til Hollands þar sem ungur listamaður fylgist örvæntingarfullur með unnustu sinni sökkva í þunglyndi yfir vetrarmánuðina.Í þriðju sögunni fær lesandi að kynnast Ástu, listakonu og húsmóður í höfuðborginni á sjötta áratug síðustu aldar. Eiginmaður Ástu er fyrirferðarmikill í listaheiminum en hennar listsköpun líður fyrir hans. Sögusvið fjórðu sögunnar er millistríðsárin og hefst sagan í Kaupmannahöfn. Tvær vinkonur frá því á háskólaárunum reyna að feta sig í nýju heimsumhverfi þar sem önnur er á flótta undan nasistum en hin er örugg yfirstéttarkona . Í fimmtu og síðustu sögunni er blindur unglingspiltur á átjándu öld í aðalhlutverki þar sem hann leitar að fegurð í lífi sínu. Það kemur kannski ekki á óvart hve mikið rými listin, þá helst málaralistin, fær í sögunum sem birtast í Vetrargulrótum, enda er Ragna sjálf listakona. Persónur verksins leita að rými til þess að skapa, þroskast og lifa. Síðasta sagan sker sig kannski einna helst úr þar, enda hafði sveitarómagi á átjándu öld eflaust hvorki tíma né rými fyrir annað en listsköpun hugans. Sumar sögurnar eru sterkari en aðrar, líkt og gerist gjarnan þegar sögur koma saman. Þá eru það helst fyrstu tvær sögurnar sem eru heldur líkar í stíl og bragði þar sem báðar aðalpersónurnar eru helteknar af annarri manneskju úr eigin lífi. Vetrargulrætur inniheldur í heildina vel smurðar sögur. Textinn er ljóðrænn á köflum sem gefur honum fallegan brag á sama tíma og höfundur hefur greinilega unnið heimavinnuna og skapað sannfærandi sagnasvið. Textinn vekur með lesanda áhuga, samúð og sorg enda vinnur höfundur með minni úr fortíð og nútíð sem eru kunn lesendum, á borð við aðþrengdar eiginkonur á 19. öld, gyðinga á flótta, undirokaða sveitarómaga og konur sem þjást af kulnun í starfi.NIÐURSTAÐA: Ljómandi gott sagnasafn ofið aftur í tímann.
Birtist í Fréttablaðinu Bókmenntir Mest lesið Furðuleg forréttindablinda Gagnrýni Björgvin Franz kaupir 36 fermetra íbúð í miðbænum Lífið Innlit: „Ég bý í draumahúsinu“ Lífið Lína orðin að „peningasjúkum TikTok-trúði“ eða sjálfsögð markaðssetning? Menning Hiti í Hringekjunni Tíska og hönnun „Gerði grín að líkamanum mínum og sagði að ég ætti að tala minna“ Lífið Þau eru tilnefnd til Sjónvarpsverðlaunanna fyrir árið 2023 Bíó og sjónvarp Innlit í þriggja hæða veitingastaðinn Bryggjuhúsið sem er í húsi frá 1863 Lífið Stjörnulífið: „Bið ekki um meira“ Lífið Svikarar höfðu fjórar milljónir af Aroni Can Lífið Fleiri fréttir Furðuleg forréttindablinda Slappur smassborgari Shine on, you crazy Íslendingar! Skömminni skilað Friðrik Ómar bauð upp á sveppi – og Villi hefði elskað það! Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Ekki er allt gull sem glóir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Sjá meira