Gallia est omnis Þorbjörg Gunnlaugsdóttir skrifar 6. júní 2019 07:00 Frásögn nýstúdentsins sjarmerandi úr Menntaskólanum í Reykjavík sem útskrifaðist á dögunum úr fornmáladeild skólans sigraði hjarta mitt. Saga hans af baráttunni við latínulexíur boðaði einhverja dæmalaust aðdáunarverða þrautseigju. Eldri skólafélagar hans, systur og bræður í fornmáladeild, táruðust við lesturinn. Þennan stúdent skiljum við. Miskunnarlaus hernaður Gallastríða Júlíusar Caesars var á dagskrá sex kennslustundir í viku í Latínuskólanum. Það mátti auðvitað ekki minna vera. Og í latínutímum rétt eins og í Gallastríðunum börðust menn til síðasta dropa. Í minningunni er eins og hermenn Caesars hafi lítið gert annað en að þramma yfir hæðir og fjöll heilu annirnar í MR. Á göngu skipulögðu þeir með hvaða hætti skyldi beita vopnum á grimma andstæðinga sína. Nemendur greindu málfræði stríðsrekstursins og hvaða fall og ablativus hentaði best til drápanna. Áróðursritið um Gallastríðin boðar kænsku, þrek og þrautseigju. Sendimenn fóru til Ceasars án árangurs með hótanir um að von væri á vondu færi hann ekki að ráðum þeirra. Okkar maður Caesar gersigraði nú samt. Latína var um aldir heimsmál og það er í mínum huga algert aukaatriði í málinu að latína er ekki lengur töluð. Það er lofsverður árangur að stúdentar sitji klukkustundum saman við lestur látinnar tungu. Seigla latínunnar lifir áfram í afkomendum hennar. Viðtalið við nýstúdentinn rammaði inn þá skynsamlegu lífssýn sem MR skilur eftir, að það skiptir máli að kunna að þreyja þorrann til enda. Þetta vissi Ceasar auðvitað og þetta kennir hann máladeildarstúdentum í dag sem endranær. Árin í MR færa nemendum þennan skilning og þessa þolinmæði. Og alla daga þökkum við fyrir að vita og skilja að Gallia est omnis divisa in partes tres. Það skiptir máli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Mest lesið Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun