Tíska og hönnun

Klæðist stórum fötum svo fólk geti ekki haft skoðanir á líkama hennar

Sylvía Hall skrifar
Billie Eilish er aðeins sautján ára gömul en er á meðal þekktustu tónlistarmanna í bransanum í dag.
Billie Eilish er aðeins sautján ára gömul en er á meðal þekktustu tónlistarmanna í bransanum í dag. Vísir/Getty
Ungstirnið Billie Eilish er ein þeirra sem taka þátt í nýjustu herferð tískurisans Calvin Klein og hefur auglýsing hennar vakið mikla athygli fyrir þær sakir að hún opnar sig í fyrsta sinn um fataval sitt. Eilish, sem er aðeins sautján ára gömul, hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn síðasta árið. 

Í auglýsingunni, sem gengur út á að fólk segi „sinn sannleika“, talar Eilish um ástæðu þess að hún klæðist stórum fötum en afslappað fataval hennar hefur vakið athygli aðdáenda hennar allt frá því að hún kom fyrst fram á sjónarsviðið. 

Vísir/Getty
Ástæðan hefur vakið mikið umtal og ristir dýpra en margir gerðu sér grein fyrir og endurspeglar upplifun hennar af því að vera ung kona í sviðsljósinu.





„Ég vil ekki að heimurinn viti allt um mig. Þess vegna klæðist ég stórum fötum, enginn getur haft skoðun því þeir hafa ekki séð það sem er undir,“ segir Eilish í auglýsingunni.

„Enginn getur sagt: Hún er grönn, hún er ekki grönn. Hún er með flatan rass, hún er með stóran rass. Enginn getur sagt þetta því þeir vita það ekki.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.