Þrjátíu þúsund flóttamenn látnir á fimm árum Heimsljós kynnir 11. janúar 2019 16:15 Yfirlitskort um dauðsföll flótta- og farandfólks/ IOM
Rúmlega þrjátíu þúsund flóttamenn létust á árunum 2014 til 2018. Þeir ýmist hurfu eða drukknuðu, að því er fram kemur í yfirliti alþjóðlegrar stofnunar um farandfólk (IOM) sem heldur skrá utan um þá sem ekkert spyrst til. Talið er að rúmlega 19 þúsund dauðsföll eða mannshvörf megi rekja til drukknunar, ekki aðeins á Miðjarðarhafi, heldur víðar í heiminum. Verulega skortir á opinber gögn og upplýsingar um dauðsföll þeirra sem eru á faraldsfæti. Af þeim sökum slær stofnunin varnagla og segir að í besta falli megi líta á tölurnar sem lágmarksáætlun. Tæplega helmingur umræddra dauðsfalla varð á Miðjarðarhafi, á sjóðleiðinni milli Norður-Afríku og Ítalíu. Samkvæmt „Missing Migrants Project“ létust að minnsta kosti 17.644 í hafi á þremur hættulegustu siglingaleiðum flóttafólks á þessu á fimm ára tímabili sem yfirlitið nær til. Flótta- og farandfólk innan Afríku setur sig líka í miklu hættu ef marka má yfirlit IOM því frá 2014 eru skráð 6,529 dauðföll meðal þeirra, langflest í norðurhluta álfunnar. Líkast til eru dauðsföllin enn fleiri því ákaflega erfitt er að henda reiður á afdrif fólks í þessum heimshluta, segir í frétt frá stofnuninni. Í Asíu eru skráð 2,900 dauðsföll flóttafólks, rúmlega tvö þúsund í sunnanverðri Asíu og rúmlega fimm hundruð í Miðausturlöndum. Þá létust tæplega þrjú þúsund í Ameríku á sama tímabili, 60% á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Ennfremur eru skráð rúmlega þúsund dauðsföll í rómönsku Ameríku og Karíbahafi en óttast er að raunveruleg tala sé mun hærri vegna skorts á gögnum.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Læknir ekki séð aðra eins áverka á þrjátíu ára starfsferli Innlent „Algjörlega brjálæðislegt að sjá“ Innlent Átta ungmenni handtekin í Seljahverfi Innlent Afsökunarbeiðni og einræðisherra í skiptum fyrir flotastöð? Erlent Ömmur og afar Bryndísar Klöru: „Tími aðgerða þegar liðinn“ Innlent Einn fluttur með þyrlu vegna slyssins Innlent Sendiherra látinn fjúka vegna brandara á kostnað Trump Erlent Íslendingar eigi eitt tromp gegn Trump Innlent 30 milljarðar safnast upp á reikningum Menntasjóðs Innlent Nauðgunardómi snúið við: „Gæfi allt til að taka þetta til baka“ Innlent