Giannis nálgast Shaq í flestum troðsluveislum á einu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2018 21:00 Giannis Antetokounmpo hefur verið magnaður á þessu tímabili. Vísir/Getty
Giannis Antetokounmpo hefur verið magnaður með liði Milwaukee Bucks og aðalástæðan fyrir því að liðið er með næstbesta árangurinn í Austurdeildinni. Giannis Antetokounmpo er með frábærar tölur en hann nálgast líka magnað met Shaquille O´Neal frá sínum bestu árum með Los Angeles Lakers. Giannis hefur nefnilega náð fjórum leikjum á þessu tímabili þar sem hann hefur troðið boltanum átta sinnum eða oftar í körfuna í einum leik. Metið í NBA-deildinni á Shaquille O´Neal frá tímabilinu 2002-03 en Shaq náði þá fimm átta troðslu leikjum með liði Los Angeles Lakers. Giannis Antetokounmpo hefur alls troðið boltanum 127 sinnum í körfuna í 28 leikjum en hann var með 161 troðslu í 75 leikjum allt tímabilið í fyrra. Persónulega metið hans eru 194 troðslur í 80 leikjum tímabilið 2016-17 en það met slær hann nær örugglega í vetur. Í vetur er Giannis að bjóða upp á 4,5 troðslur að meðaltali í leik. Giannis er með 26,7 stig, 12,9 fráköst og 6,1 stoðsendingu að meðalali í leik í vetur. Hann er að hækka sig í fráköstum (10,0 fráköst í leik í fyrra) og stoðsendingum (4,8 stoðsendingar í leik í fyrra) en að skora nánast jafnmikið og í fyrra (26,9 stig í leik í fyrra). Shaquille O´Neal tróð boltanum mest 255 sinnum í körfuna á einu tímabili en það var í 73 leikjum veturinn 2004-05 þegar hann lék með Miami Heat liðinu.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira