Jón Axel fer á kostum og er efstur í öllu í efsta liðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. desember 2018 13:00 Jón Axel Stefánsson er efstur í öllu sem að skiptir máli hjá Davidson. vísir/getty
Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans í Davidson-háskólanum unnu enn einn sigurinn í nótt þegar að þeir lögðu Winthrop-háskólann örugglega á heimavelli, 99-81. Þetta var fimmti sigur Davidson í röð en liðið er alls búið að vinna átta af níu leikjum sínum á tímabilinu og er efst í Atlantic 10-deildinni í háskólakörfunni vestanhafs. Jón Axel spilaði frábærlega enn og aftur en hann daðraði við þrennu með 24 stigum, tíu fráköstum og sex stoðsendingum. Hann hitti úr átta af fjórtán skotum sínum, þar af fjórum af sjö þriggja stiga skotunum sem að hann tók úr leiknum sem gerir 57 prósent nýtingu fyrir utan teig.Jón Axel og félagar eru efstir í A10.vísir/gettyEfstur í öllu Jón Axel var ekkert bara að spila frábærlega í nótt. Hann er búinn að vera magnaður í fyrstu leikjum tímabilsins og í heildina bestur í sínu liði. Hann er stiga, frákasta- og stoðsendingahæstur í Davidson-liðinu með 19,4 stig að meðaltali í leik, 6,3 fráköst og 4,8 stoðsendingar. Ekki amalegt. Þá er Jón Axel næstefstur í stolnum boltum, spilar næst flestar mínúturnar í liðinu og er með 43,8 prósent þriggja stiga nýtingu sem er sömuleiðis sú næst besta í liðinu. Grindvíkingurinn er á þriðja ári hjá Davidson en í fyrra var hann að skora 13,2 stig að meðaltali í leik, taka sex fráköst og gefa fimm stoðsendingar þannig að hann er heldur betur að bæta stigaskorið sitt. Eins og flestir vita hefur Jón Axel ekki langt að sækja körfuboltahæfileikana en faðir hans, Guðmundur Bragason, leiddi Grindavík til Íslandsmeistaratitilsins 1996 og þá spilaði móðir hans Stefanía Sigríður Jónsdóttir sömuleiðis fyrir meistaraflokk Grindavíkur.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira