Svíar segja að þetta sé framtíðin, eitt app sem gildir í alls kyns líkamsrækt. Til úrskýringar gildir appið í hátt í 300 stöðvar í Svíþjóð og fólk getur valið um að fara í eina líkamsræktarstöð í dag, aðra á morgun, þá þriðju hinn daginn og svo framvegis. Þetta gefur fólki kost á að stunda hlaupabretti eða önnur tæki, hóptíma, sund, jóga, dans, CrossFit, tennis eða hvaðeina sem það langar til hverju sinni á sama mánaðarkortinu.
Fólk borgar eitt gjald hjá Swiftr og getur síðan stundað þá líkamsrækt sem það langar til svo framarlega sem stöðin er meðlimur í Swiftr. Það er alltaf hægt að finna sér eitthvað spennandi að prófa. Swiftr á enga líkamsræktarstaði en er með samstarf við hinar ólíklegustu stöðvar víðsvegar um Svíþjóð. Með appinu bókar fólk tíma sem vekur áhuga og byrjar að æfa.
Johanna var dugleg að stunda líkamsrækt í Hollandi og kolféll fyrir því að geta farið á milli stöðva og þannig gert mismunandi æfingar. Hún segir að það hafi hentað sér fullkomlega. „Maður getur orðið leiður á því að vera alltaf í því sama, það verður að ákveðinni rútínu. Framtíðin liggur í þessu fyrirkomulagi,“ segir hún. „Maður getur þjálfað þegar maður vill og hvar sem mann langar án þess að borga sérstaklega fyrir það. Ég var til dæmis með eitt kort í tækjasal og annað í jógatímum. Það var dýrt fyrir mig,“ segir hún.
Swiftr gefur fólki kost á að prófa æfingar í 14 daga áður en það festir kaup á korti. Þrír möguleikar eru í boði í kortum, með eða án bindingar. Frá því fyrirtækið var sett á stofn hefur það vaxið og dafnað. Sífellt fleiri líkamsræktarstöðvar vilja taka þátt með Swiftr enda hefur það sýnt sig að fólk kann að meta að geta farið á milli stöðva. Nýjar stöðvar bætast við í hverri viku og meðlimir geta nú valið á milli 2.000 mismunandi hóptíma, bæði utanhúss og innan í hverri viku. Alls kyns hlaupa- og gönguhópar eru hluti af Swiftr og sömuleiðis bootcamp og fleiri utanhússíþróttir. Það er þess vegna úr nægu að velja og margt hægt að prófa. Fyrir þá sem langar til að kynna sér þetta form betur er hægt að fletta upp heimasíðu Swiftr.