Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti. Hver réttur á ekki að taka lengri tíma en 15 mínútur.
Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má sjá uppskriftir úr þætti kvöldsins.
French Toast
- 4 stórar brauðsneiðar
- 4 egg
- 2 dl rjómi
- 2 msk. appelsínusafi
- Rifinn appelsínubörkur, um það bil matskeið
- ½ tsk kanill
- 1 tsk. Vanilludropar
- Fersk jarðarber
Aðferð:
- Skerið brauðið niður í þykkar sneiðar.
- Pískið egg og rjóma léttilega saman. Bætið appelsínusafa, kanil, vanillu og og hrærið vel. Hellið blöndunni yfir brauðsneiðarnar og snúið þeim einu sinni við. Leyfið brauðinu að liggja í eggjablöndunni í 2 – 3 mínútur.
- Hitið smjör á pönnu og steikið á hvorri hlið í nokkrar mínútur eða þar til eggin eru elduð. Gætið þess að hafa ekki of háan hita á pönnunni.
- Berið brauðið fram með ferskum jarðarberjum og hlynsírópi. Njótið vel!

Bláberja boozt
- 200 g Bláberjaskyr
- 2 dl frosin bláber
- Einn banani
- Klakar
- Möndlumjólk, magn eftir smekk
Aðferð:
1. Setjið öll hráefnin í blandarann í smá stund eða þar til drykkurinn er silkimjúkur.
2. Hellið drykknum í glas og njótið.

Ítölsk eggjakaka bökuð í ofni
Bökuð á pönnu sem má fara inn í ofn, stærðin á pönnunni er 26cm
- 1 msk ólífuolía
- 5 sneiðar pancetta eða beikon
- 1 dl blaðlaukur
- 2 hvítlauksrif
- 2 meðalstórar bökunarkartöflur, smátt skornar
- 1 dl sólþurrkaðir tómatar
- 8 egg
- 200 ml sýrður rjómi
- Salt og pipar
- 150 g klettasalat
- 10 – 12 kirsuberjatómatar
-
Nýrifinn parmesanostur, magn eftir smekk
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 180°C.
- Hitið olíu á pönnu, skerið blaðlauk og hvítlauk smátt og steikið.
- Skerið pancettu í litla bita og bætið út á pönnuna þar til hún er orðin stökk, því næst fara smátt saxaðar sólþurrkaðir tómatar og smátt skornar kartöflur. Steikið þar til kartöflurnar eru orðnar gullinbrúnar.
- Pískið egg og sýrðan rjóma saman, kryddið með salti og pipar. Hellið eggjablöndunni yfir og steikið á lágum hita í 4 – 5 mínútur eða þar til eggjakakan er að verða stíf og flott. Rífið parmesan yfir áður en þið setjið eggjakökuna inn í ofn við 180°C í 30 – 35 mínútur eða þar til eggjakakan er orðin stíf í gegn og gullinbrún.
- Berið eggjakökuna fram með fersku klettasalati, smátt skornum kirsuberjatómötum og nýrifnum parmesan.
