Tottenham kom til baka í Tórínó og eru með pálmann í höndunum Anton Ingi Leifsson skrifar 13. febrúar 2018 21:45 Leikmenn Tottenham fagna marki í kvöld. vísir/getty Tottenham gerði góða ferð til Ítalíu í kvöld þegar liðið mætti Juventus í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Eftir erfiða byrjun fyrir gestina urðu lokatölur 2-2. Juventus byrjaði af miklum krafti og sló Tottenham út af laginu. Gonzalo Higuain skoraði fyrsta markið eftir laglega útfærslu af aukaspyrnu eftir einungis tvær mínútur. Einungis sjö mínútum síðar var Higuain aftur á ferðinni en þá skoraði hann af vítapunktinum eftir að Ben Davies gerði sig sekan um klaufalegt brot. Harry Kane, hinn magnaði, minnkaði muninn tíu mínútum fyrir leikslok eftir undirbúning frá Dele Alli og þannig stóðu leikar í hálfleik. Christian Eriksen jafnaði svo metin tæplega tuttugu mínútum fyrir leikslok úr aukaspyrnu þar sem má setja spurningarmerki við Gianluigi Buffon í marki Juventus. Lokatölur 2-2. Tvö afar mikilvæg útivallarmörk hjá Tottenham og liðið er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn þann 7. mars. Meistaradeild Evrópu