Gott að vera örvhentur í Olís deild karla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2018 12:30 Teitur Örn Einarsson er sá markahæsti í Olís deildinni þegar leikmenn koma til baka úr fríinu. Vísir/Eyþór
Fimm af sjö markahæstu leikmönnum Olís deildar karla í handbolta nota vinstri höndina við að setja boltann í mark andstæðinganna. Karladeildin fer aftur af stað í kvöld eftir langt Jóla- og EM-frí. HBstatz heldur vel utan um alla tölfræði í Olís deild karla í vetur og þar má meðal annars sjá hvaða leikmenn hafa skorað flest mörk í deildinni til þessa í vetur. Tveir leikmenn hafga náð að komast yfir hundað marka múrinn og það eru Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson og Fjölnismaðurinn Kristján Örn Kristjánsson. Báðir eru þeir ungir og örvhentir en þeir eru líka með góða forystu eftir fjórtán fyrstu umferðirnar. Teitur Örn hefur þriggja marka forystu á Kristján Örn og munar þar mestu um fjórtán marka leik hans á móti einmitt Kristjáni og félögum hans í Fjölni. Árni Bragi Eyjólfsson hjá Aftureldingu er í þriðja sætinu, sautján mörkum á eftir Teiti og fjórtán mörkum á eftir Kristjáni. Árni Bragi er örvhentur eins og þeir tveir efstu. Markahæsti rétthenti leikmaðurinn er Haukamaðurinn Hákon Daði Styrmisson sem skipar fjórða sætið á listanum. Liðsfélagi hans Daníel Ingason, sem er í sjötta sætinu, er eini hinn rétthenti leikmaðurinn í hópi þeirra sjö efstu. Eyjamaðurinn Theodór Sigurbjörnsson var markakóngur deildarinnar á síðasta tímabili en hann er nú 27 mörkum á eftir efsta manni. Theodór missti reyndar af tveimur leikjum en hann er í þriðja sæti á listanum yfir flest mörk að meðaltali.Markahæstu leikmenn Olís deildar karla:(Tölur frá HBstatz) 1. Teitur Örn Einarsson, Selfossi 106 mörk (7,57 mörk í leik) 2. Kristján Örn Kristjánsson, Fjölni 103 (7,36) 3. Árni Bragi Eyjólfsson, Aftureldingu 89 (6,36) 4. Hákon Daði Styrmisson, Haukum 86 (6,14) 5. Einar Rafn Eiðsson, FH 83 (5,93) 6. Daníel Ingason, Haukum 82 (6,31) 7. Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV 79 (6,58) 8. Anton Rúnarsson, Val 78 (5,57) 9. Bergvin Þór Gíslason, ÍR 77 (5,50) 10. Ásbjörn Friðriksson, FH 77 (5,50)
Olís-deild karla Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira