Moneyball-gaurinn mættur í enska boltann Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. desember 2017 11:00 Það verður ítarlega fylgst með Billy Beane í enska boltanum. vísir/getty
Það gæti farið að birta til hjá enska knattspyrnufélaginu Barnsley eftir að moldríkir Kínverjar keyptu félagið og fengu til sín manninn sem gjörbylti hafnaboltaheiminum og myndin Moneyball var gerð um. Patrick Cryne hefur verið eigandi Barnsley í þrettán ár en er með krabbamein og á lítið eftir. Hann vildi koma félaginu í góðar hendur áður en hann kveður þennan heim. Kínverjarnir eru búnir að setja Bandaríkjamanninn Billy Beane í stjórnina og hann mun vera með puttana í því hvernig félagið verður byggt upp. Barnsley er í fallbaráttu í B-deildinni í dag. Beane beitti byltingarkenndum aðferðum hjá Oakland, þegar hann mat leikmenn út frá tölfræði með góðum árangri. Eftir góðan árangur Oakland tímabilið 2001-02, þar sem liðið vann m.a. 20 leiki í röð, fékk Beane risa tilboð frá Boston Red Sox um að gerast framkvæmdastjóri félagsins en hafnaði því. Tímabilinu 2001-02 hjá Oakland voru gerð skil í kvikmyndinni Moneyball sem var frumsýnd árið 2011. Myndin var tilnefnd til nokkurra Óskarsverðlauna. Pitt fékk m.a. tilnefningu sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Beane. Beane prófaði sig fyrst áfram í knattspyrnunni árið 2015 er hann var ráðinn til AZ Alkmaar sem ráðgjafi. Beane hefur áður sagt að Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sé átrúnaðargoð hans. Hann hefur hitt Wenger og rætt sínar aðferðir við hann sem og við Sir Alex Ferguson. Verður mjög áhugavert að sjá hvað hann gerir hjá Barnsley á næstu mánuðum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Moneyball til Jórvíkurskíris Hafnaboltagoðsögnin Billy Beane, sem Brad Pitt lék í kvikmyndinni Moneyball, er hluti af hópi sem ætlar að kaupa enska B-deildarliðið Barnsley. 15. september 2017 12:00 Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira
Moneyball til Jórvíkurskíris Hafnaboltagoðsögnin Billy Beane, sem Brad Pitt lék í kvikmyndinni Moneyball, er hluti af hópi sem ætlar að kaupa enska B-deildarliðið Barnsley. 15. september 2017 12:00