Ó, mikli leyndardómur og undraverða dásemdarverk Jónas Sen skrifar 13. desember 2017 10:45 Tæknilega séð var söngurinn í fullkomnu styrkleikajafnvægi og ólíkar raddir voru prýðilega mótaðar, segir í dómnum.
Tónlist Kórtónleikar Hallgrímskirkja laugardagur 9. desember Mótettukórinn söng blandaða jóladagskrá. Einsöngvari: Elmar Gilbertsson. Orgelleikari: Björn Steinar Sólbergsson. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Jólatónleikar Mótettukórsins á laugardaginn voru ljúfir. Yfirskrift þeirra var O magnum mysterium, sem er titillinn á fornum jólasálmi. Mörg tónskáld hafa samið við hann tónlist og voru þrjú dæmi flutt á tónleikunum. Sálmurinn hljómar svo: „Ó, mikli leyndardómur og undraverða dásemdarverk, að dýrin skyldu mega sjá Drottin nýfæddan og liggjandi í jötu. Blessuð er mærin sem undir belti mátti bera Drottin Jesúm Krist. Hallelúja.“ Þessi sami sálmur var líka viðfangsefni sænska djasspíanóleikarans Jans Lundgren á tónleikum fyrr í vikunni. Hér var andrúmsloftið þó mun hátíðlegra, enda djassinn víðsfjarri. Tónskáldin sem um ræðir voru Victoria, Poulenc og Lauridsen. Sá fyrsti var uppi á tímum endurreisnarinnar, næsti lifði á fyrri hluta aldarinnar sem leið og sá síðastnefndi er enn á lífi. Gaman var að heyra mismunandi nálganir tónskáldanna. Allt frá voldugri fjölröddun Victorias, ljóðrænni en heitri rómantík Poulencs og íhugulli andakt Lauridsens. Sálmarnir voru fallega sungnir af Mótettukórnum undir öruggri stjórn Harðar Áskelssonar. Fjölröddunin var tær, rómantíkin tilfinningaþrungin og notaleg fylling í síðastnefnda verkinu. Tæknilega séð var söngurinn í fullkomnu styrkleikajafnvægi og ólíkar raddir voru prýðilega mótaðar og samtaka. Dagskráin var blönduð en öll helguð jólunum. Þar á meðal var lag eftir Hörð sjálfan sem nefndist Jólagjöfin og var ákaflega fallegt. Það hófst á alvörugefnum nótum en breyttist svo í fölskvalausa gleði sem var sérlega heillandi. Elmar Gilbertsson tenór söng einsöng í nokkrum lögum og gerði það afar vel. Hann hefur fagra rödd, eins og margoft hefur komið í ljós, og hún naut sín fyllilega á tónleikunum. Túlkun hans var hlý og gædd friði og gleði, án nokkurrar tilgerðar. Fyrir bragðið streymdi tónlistin óheft í gegn og fékk að vera hún sjálf. Björn Steinar Sólbergsson sat við orgelið. Leikur hans var yfirleitt hófsamur og viðeigandi. Helst mátti finna að heldur hvellri orgelrödd í Nóttin var sú ágæt ein eftir Sigvalda Kaldalóns. Að öðru leyti var spilamennskan hin ágætasta. Orgelforleikur eftir Reimerdes var til dæmis einkar hrífandi í meðförum Björns, fullur af alvöru og dýpt. Eins og vaninn er á tónleikum Mótettukórsins fyrir jólin var ákveðið leikrit hluti af dagskránni. Kórinn var ekki bara á sviðinu heldur kom hann líka syngjandi inn í kirkjuna í upphafi tónleikanna. Hann tók sér jafnframt stöðu umhverfis tónleikagestina á einum tímapunkti, sem var áhrifamikið. Söngurinn umvafði tónleikagesti. Elmar gekk sömuleiðis syngjandi meðfram áheyrendabekkjunum í einu laginu. Þannig var hægt að njóta söngs hans úr mismunandi áttum, sem skapaði skemmtilega fjölbreytni. Tónleikunum lauk á því að áheyrendur fengu að taka lagið með kór og einsöngvara. Í lokin var sungið Heims um ból, sem var svo mögnuð upplifun að nokkrir áheyrendur sáust fella tár. Maður gekk út úr kirkjunni í jólaskapi. Jónas SenNiðurstaða: Hátíðlegir tónleikar með fögrum kór- og einsöng.
Mest lesið „Verið ekki að sjúga lítil typpi því þið verðið hrukkóttar“ Lífið Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen Lífið „Nú dýrka ég að vera vaxin eins og fæðing Venusar“ Tíska og hönnun „Ég hef ekki trú á öðru en að við lifum þetta af“ Bíó og sjónvarp Heitasta listapar landsins á djamminu Lífið „Pylsusala“ á Lækjartorgi á kvennafrídaginn Lífið Furðuleg forréttindablinda Gagnrýni Sveinn Andri og María Sigrún mættu á frumsýninguna Lífið Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Fleiri fréttir Furðuleg forréttindablinda Slappur smassborgari Shine on, you crazy Íslendingar! Skömminni skilað Friðrik Ómar bauð upp á sveppi – og Villi hefði elskað það! Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Ekki er allt gull sem glóir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Sjá meira