Velja kokk ársins Stefán Árni Pálsson skrifar 22. september 2017 12:30 Þessir keppa til úrslita. Mynd - Sigurjón Sigurjónsson
Klúbbur matreiðslumeistara velur Kokk ársins 2017 um helgina. Fimm manna úrslitakeppni í Kokkur ársins keppninni fer fram í Hörpu laugardaginn 23.sept. Þetta eru þeir fimm keppendur sem munu keppa um titilinn Kokkur ársins 2017.Víðir Erlingsson - Bláa LóniðRúnar Pierre Heriveaux - Grillið Hótel SagaGarðar Kári Garðarsson - Deplar Farm / StrikiðHafsteinn Ólafsson - Sumac Grill + DrinksBjarni Viðar Þorsteinsson - Sjávargrillið Úrslitakeppnin fer fram í Hörpu á morgun laugardag 23.september, Keppendur elda 3ja rétta matseðil úr svokallaðir leyni körfu. Þ.e. keppendur fá að vita deginum áður hvaða hráefni eru í boði og hafa svo fimm klukkustundir til að undirbúa matinn. Húsið er opið fyrir alla gesti kl: 12 – 18, eftir það er einungis opið fyrir gesti sem hafa tryggt sér miða á kvöldverð samhliða keppninni þar sem Gummi Ben, Eyþór Ingi og landsliðið munu sjá um stemninguna. Kokkur ársins 2017 verður svo krýndur um kl:23:00 af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. Í dag föstudag 22. september fer einnig fram í Hörpu nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu þar sem verða valdir keppendur fyrir norðurlandakeppni 2018. Opið hús fyrir áhugasama að fylgjast með nemakeppninni kl: 12-19.
Mest lesið Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Lífið Magnús Hlynur í Efstaleitið Lífið Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Lífið Chuck Norris lagður inn á spítala Bíó og sjónvarp Helstu einkenni breytingaskeiðsins og mögulegar lausnir Lífið Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Lífið Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit Lífið Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Bíó og sjónvarp Jay-Z breytir um nafn... aftur Tónlist Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Lífið Fleiri fréttir Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Sjá meira