Allar gerðir Honda í Evrópu verða með rafmótorum Finnur Thorlacius skrifar 13. september 2017 09:49 Honda Urban EV rafmagnsborgarbíllinn.
Bílaframleiðendur á bílasýningunni í Frankfurt keppast nú við að lýsa yfir áformum sínum um rafvæðingu bílaflota síns og sagði Honda frá því í gær í Frankfurt að hver einasta gerð sem boðin verður nýr í Evrópu verði með rafmótorum, annað hvort eingöngu eða til stuðnings brunavélum. Honda menn vilja meina að eftirspurnin eftir slíkum bílum sé meiri í Evrópu en annarsstaðar. Honda gerir reyndar ráð fyrir því að tveir þriðju af sölu sinni muni verða með rafmótorum strax árið 2025. Honda hefur stórar áætlanir um sölu bíla sinna í Evrópu og leggur mikla áherslu á sölu bíla sinna þar. Honda sýndi þennan Urban EV Concept bíl sinn á pöllunum í Frankfurt en hann gengur eingöngu fyrir rafmagni og er fremur smár borgarbíll. Honda gerir ráð fyrir að hann verði kominn á markað eftir um tvö ár. Einnig tilkynnti forstjóri Honda að tengiltvinnútgáfa af Honda CR-V væri nær tilbúin til markaðssetningar og er slíkur bíll líka til sýnis í Frankfurt. Verður það fyrsti slíki bíllinn sem í boði verður frá Honda í Evrópu og mun hann leysa af dísilútgáfu CR-V á meginlandi Evrópu.Honda CR-V tengiltvinnbíll á pöllunum í Frankfurt.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent